© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.10.2000 | 22:04 | gfs/rg
Einn heimasigur í Kjörísbikarnum - Mickens með 47 stig
Fyrstu þrír leikirnir í Kjörísbikarnum fóru fram í kvöld. Skallagrímur var eina liðið til að vinna heimasigur, en þeir unnu Hamar með átta stiga mun, 71-63. Stigahæstur í liði heimamanna var Sigmar Páll Egilsson með 26 stig, en Chris Dade skoraði 17 stig fyrir Hamar.

Keflavík vann ÍR í Seljaskóla 111-89. Calvin Davis var atkvæðamestur Keflvíkinga með 33 stig, 10 fráköst og þrjú varin skot, en næststigahæstur var Jón N. Hafsteinsson með 18 stig. Í liði ÍR var Cedrick Holmes með 30 stig og 16 fráköst, en Eiríkur Önundarson kom næstur með 27 stig.

Í Grafarvoginum töpuðu Valsmenn fyrir Haukum 103-82. Rick Mickens var í essinu sínu og skoraði 47 stig fyrir Hauka, en Eyjólfur Jónsson og Marel Guðlaugsson komu næstir með 10 stig hvor. Í lið heimamanna var Drazen Jozic með 25 stig og Delawn Grandison með 18 stig.

Á morgun, föstudag, fara fram hinir fimm leikirnir í fyrri hluta 16 liða úrslitanna.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá matarboði ritnefndar Sögu KKÍ, í mars 2001.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið