© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
15.1.2004 | 14:46 | bl
Landsliðsþjálfari í þingframboð
Yiannis Ioannidis landsliðsþjálfari Grikkja hefur tilkynnt að hann ætli að bjóða sig fram til gríska þingsins, en kosningar fara fram í landinu 7. mars nk.

Ioannidis er sigursælasti þjálfari Grikklands. Hann hefur unnið 12 meistaratitla og 6 bikarmeistaratitla með félagsliðum og er núverandi landsliðsþjálfari. Undir hans stjórn varð gríska landsliðið í 5. sæti á Evrópumótinu í Svíþjóð sl. haust.

Þjálfarinn ætlar að stjórna landsliðið á Ólympíuleikunum í Aþenu í sumar jafnvel þótt hann hljóti kosningu í mars. Reyndar banna grísk lög þingmönnum að vera í annarri launaðri vinnu, en Ioannidis lætur það ekkert á sig fá og hefur boðist til að þjálfa liðið launalaust verði hann kosinn á þing.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Guðrún Gunnarsdóttir ÍR reynir körfuskot í leik ÍS og ÍR í 1. deild kvenna líklega árið 1984.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið