© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
27.9.2000 | 15:33 | RG
Kári Marisson í efstu deild að nýju
Það er athyglisvert að skoða leikmannahóp Tindastóls í leiknum við Njarðvík á morgun, Valur Ingimundarson hefur valið hinn knáa bakvörð Kára Marisson í hópinn. Kári sem verður 49 ára í nóvember hefur ekki leikið í Úrvalsdeildinni síðan 3. desember 1989 þegar Tindastóll lék við KR. Frá þeim tíma hefur Kári leikið með 2. deildarliði Smára í Varmahlíð en í sumar fór hann að mæta á æfingar hjá Tindastól og fór svo að Valur valdi Kára í hópinn í kvöld, en fyrir utan hópinn situr sonur Kára, Axel sem er 17 ára og er því ekki ólíklegt að feðgar muni spila saman í úrvalsdeild í fyrsta skipti í vetur. Það yrði t.d. gaman að sjá feðgana spila við KR sem hefur annan son Kára innan sinna vébanda, Arnar.
Þess má svo geta að Kári hóf að leika í meistaraflokki árið 1967, þá 16 ára gamall, með KFR og lék hann sinn fyrsta leik í Hálogalandi, seinna lék Kári með Val og Njarðvík og á að baki 24 A-landsleiki á árunum 1972-76
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Herbert Arnarson, Hermann Hauksson og Jón Arnar Ingvarsson landsliðsmenn voru allir atvinnumenn í Belgíu á seinni hluta tíunda áratugarins
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið