© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.9.1999 | 9:05 | -
Reyknesingar í góðum málum eftir stórsigur á London Leopards
Sameiginlegt lið Reykjanesbæjar, ÍRB, gjörsigraði London Leopards 111-75 í forkeppni Korac-cup, Evrópukeppni félagsliða í Keflavík í gærkvöld. Reyknesingar léku á als oddi og gestirnir áttu ekkert svar við stórleik þeirra. Allir tíu leikmenn ÍRB áttu góðan leik og sama var hverjir þeirra voru á leikvelli, munurinn jókst með hverri mínútinni sem leið. Þegar upp var staðið skildu 36 stig liðin að, sem ætti að duga sem veganesti í síðari leikinn í London þriðjudaginn 21. september. Stig ÍRB: Purnell Perry 26, Hermann Hauksson 18, Guðjón Skúlason 14, Teitur Örlygsson 13, Fannar Ólafsson 10, Hjörtur Harðarson 10, Gunnar Einarsson 9, Chianti Roberts 6, Friðrik Ragnarsson 5 og Friðrik Stefánsson 4.
Reyknesingar hittu mjög vel í leiknum 69% úr tveggja stiga gegn 42% gestanna og 58% úr þriggja stiga gegn 40%. Þriggja stiga körfurnar voru líka mun fleiri, eða 15 gegn 4 hjá London Leopards. Gestirnir hittu betur úr vítum 85% gegn 64% og tóku fleiri fráköst 33 gegn 30. Þeir töpuðu 18 boltum gegn 13 hjá ÍRB. Frákastahæstur í liði ÍRB var Purnell Perry með 11 fráköst.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Njarðvíkingar urðu Íslandsmeistarar karla 1998 eftir úrslitaeinvígi við KR. Aftari röð frá vinstri, Brynjar Ásmundsson vatnsberi, Gunnar Þorvarðarson formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, Einar Árni Jóhannsson aðstoðarþjálfari, Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari, Örvar Kristjánsson, Kristinn Einarsson, Páll Kristinsson, Petey Sessoms, Ægir Gunnarsson, Sævar Garðarsson, Sara Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari og Bjarni Bragason vatnsberi. Fremri röð frá vinstri: Teitur Örlygsson með dóttur sína Ernu Lind í fanginu, Guðjón Gylfason, Ragnar Ragnarsson, Friðrik Ragnarsson, Logi Gunnarsson og Örlygur Sturluson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið