© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
30.12.2003 | 10:51 | bl
Jakob lék vel á móti í San Francisco
Jakob Sigurðarson landsliðsmaður lék vel með skólaliði sínu, Birmingham Southern, á móti í San Francisco um helgina. Jakob var með 19 stig og 7,5 stoðsendingar að meðaltali í leik í mótinu. Þá var hann einnig með 66,6% nýtingu í 3ja stiga skotum og 100% nýtingu í vítum.

Á sunnudaginn tapaði Birmingham Southern fyrir Loyola-Chicago 71-74. Jakob var stigahæstur með 21 stig og 7 stoðsendingar í þeim leik. Í gær vann skólinn sigur á St. Peters 75-59. Jakob var stigahæstur í sínu liði ásamt öðrum leikmanni með 17 stig og hann var einnig með 8 stoðsendingar. Í síðari hálfleik þegar BSC var yfir 59-45 gerðu þeir Jakob og Helgi Margeirsson, sem gerði 3 stig í leiknum, hvor sína 3ja stiga körfuna og breyttu stöðunni í 65-45 og gerðu þar með út um leikinn.

Í síðasta deildarleik sínum fyrir jól vann BSC sigur á Nicholls State 88-80. Jakob var með 16 stig og 7 stoðsendingar í þeim leik. BSC hefur nú unnið 7 leiki og tapað 3 í það heila á keppnistímabilinu.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Brynjar Þór Björnsson við það að jafna leikinn við lok venjulegs leiktíma í oddaleik KR og Snæfells í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar 2007.  Hlynur Bæringsson og Sigurður Þorvaldsson koma engum vörnum við.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið