© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
20.12.2003 | 19:24 | óój
Keflavíkurkonur vörðu titilinn í Smáranum
Keflavík varð í dag fyrsta kvennaliðið til að vinna fyrirtækjabikar kvenna í annað sinn þegar liðið vann KR með 21 stigs mun, 73-52, í úrslitaleik Hópbílabikarsins sem fram fór í Smáranum. Keflavík vann þar með keppnina annað árið í röð en liðið hefur verið í úrslitaleiknum öll fjögur árin sem keppnin hefur verið haldin. Fyrirliði Keflavíkur, Erla Þorsteinsdóttir, skoraði 23 stig og tók 9 fráköst á þeim 22 mínútum sem hún spilaði og var óumdeilanlega maður leiksins.

Keflavík stakk af í fjórða leikhluta eftir að KR-liðið hafði verið inni í leiknum fyrstu þrjá leikhlutana en það má segja að afar slæm skotnýting KR-kvenna, aðeins 22%, (15 af 67), hafi gert út um vonir þeirra að halda í við Keflavíkurhraðlestina til lengdar. Keflavík vann fjórða leikhlutann 23-7 og munaði þar miklu um framlög fyrirliðans Erlu Þorsteinsdóttur undir körfunni en Erla skoraði 11 af 23 stigum sínum í síðasta leikhlutanum.

Stigaskor í 4. leikhlutanum:
Keflavík 23
Erla Þorsteinsdóttir 11
Anna María Sveinsdóttir 4
Marín Rós Karlsdóttir 4
Erla Reynisdóttir 2
María Ben Erlingsdóttir 2
KR 7
Katie Wolfe 3
Hildur Sigurðardóttir 2
Hafdís Gunnarsdóttir 2

Erla var með 23 stig og 9 fráköst í gær, nýtti skotin sín 77% og skoraði alls 10 tveggja stiga körfur eða einni fleiri en allt KR-liðið til samans. Anna María Sveinsdóttir stóð einnig fyrir sínu með 15 stig, 9 fráköst, 5 stolna og 4 stoðsendingar. Birna Valgarðsdóttir skoraði 7 stig og tók 10 fráköst en sex aðrir leikmenn Keflavíkurliðsins skoruðu síðan á bilinu 4 til 6 stig.

Hjá KR skoraði Katie Wolfe nánast helming stiganna, alls 23, og það var dýrt fyrir KR-liðið að boltinn vildi ekki niður hjá Hildi Sigurðardóttur sem misnotaði öll 13 skot sín utan af velli. Tinna Björk Sigmundsdóttir var með 10 stig fyrir KR, Hildur bætti við 8 stigum, 9 fráköstum, 6 stolnum og 6 stoðsendingum og systir hennar Guðrún Arna var með 11 fráköst og 4 stig.

Fyrirtækjabikarmeistarar kvenna:
2000 KR
2001 Grindavík
2002 Keflavík
2003 Keflavík
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Það var vel mætt á úrslitkeppnina 2008 þegar ÍR tók á móti Keflavík „Hellinum
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið