© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
15.1.2015 | 17:25 | Kristinn | FIBA, KKÍ, Landslið
MIÐASALA Á EM 2015 HAFIN!


Nú er stóra stundin runnin upp en miðasala á EuroBasket 2015 í B-riðil Íslands er hafin.

KKÍ hefur tekið frá miða fyrir íslenska áhorfendur á besta stað og með því móti sitja allir saman sem kaupa miða í gegnum KKÍ í O2-Arena þar sem leikirnir fara fram. Sætin og miðarnir eru öllum tilfellum í „Category 1“.

Icelandair, FA-travel, Gaman Ferðir og ÍT-ferðir bjóða uppá „pakkaferðir“ og er misjafnt hvort miðar eru innifaldir í pökkum þeirra eða ekki en ef miðar eru í pökkum þeirra þá eru það miðar á sama svæði og þeir miðar sem eru keyptir hjá KKÍ.
Það er takmarkað magn af miðum í boði sem KKÍ fékk og því þarf að hafa hraðar hendur við að panta miðana. Almenn miðasala hjá mótshöldurum í Berlín hefst eftir helgi og gera þeir ráð fyrir að miðarnir fari mjög hratt.

Miðaverð er 53.000 kr. fyrir ALLA leiki í riðlinum (15 leikir) og 36.000 kr. á „bara“ leiki ÍSLANDS. Miðarnir á vegum KKÍ eru í besta sætaflokki sem í boði eru.

Hvernig á að kaupa miða eingöngu hjá KKÍ
Senda pöntun á kki@kki.is og taka þarf fram nafn, símanúmer og netfang. Hægt er að leggja inn á reikning KKÍ 0121-26-1369 og kennitala: 710169-1369 eða koma við á skrifstofu KKÍ á miðvikudaginn næsta þann 21. janúar milli kl. 09:00-17:00 og greiða með reiðufé eða greiðslukorti.

Hvernig á að kaupa miða og flug hjá Icelandair
Sjá sölusíðu viðburðarins hérna á vef Icelandair.is

Í boði er hjá Icelanadair flug + miðar á eingöngu á alla leiki Íslands (5 leikir) eða flug + miðar á alla leiki riðilsins (15 leikir)

Aðrir aðilar sem eru að selja pakkaferðir á EM:
Gaman ferðir · gaman.is
FA travel · fatravel.is
ÍT ferðir · itferdir.is
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Pétur Guðmundsson í leik með San Antonio Spurs í leik gegn sínum gömlu félögum í Los Angeles Lakers.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið