© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
3.1.2015 | 20:20 | Kristinn | KKÍ, Verðlaun
Pétur Guðmundsson í Heiðurshöll ÍSÍ
Pétur Guðmundsson fyrrum NBA leikmaður var tekinn inn í Heiðurshöll ÍSÍ nú kvöld. Einnig var Ásgeir Sigurvinsson, knattspyrnumaður, tekinn inn í Heiðurshöllina en þeir eru þeir 8. og 9. sem sitja í henni.

Heiðurshöll ÍSÍ er óáþreifanleg höll afreksíþróttafólks og afreksþjálfara Íslands, í ætt við Hall of Fame á erlendri grundu. Framkvæmdastjórn ÍSÍ útnefnir einstaklinga í Heiðurshöll ÍSÍ eftir reglugerð þar að lútandi og er Heiðursráð ÍSÍ ráðgefandi aðili varðandi tilnefningar.

Í tilefni 100 ára afmælis ÍSÍ samþykkti framkvæmdastjórn ÍSÍ að setja á stofn Heiðurshöll ÍSÍ.

Umsögn ÍSÍ um Pétur þegar tilkynnt var um val Péturs:
Pétur Karl Guðmundsson, fæddur 30. október 1958 í Reykjavík, var fyrstur evrópskra körfuknattleiksmanna til að vera valinn í NBA lið í nýliðavali. Það var árið 1981 sem hann var valinn í þriðju umferð nýliðavalsins og samdi í kjölfarið við Portland Trail Blazers. Seinna lék hann með Los Angeles Lakers og San Antonio Spurs. Með Los Angeles Lakers spilaði Pétur með leikmönnum eins Kareem Abdul-Jabbar og Magic Johnson.

Pétur, sem er 218 cm hár, var einnig atvinnumaður í Argentínu í stuttan tíma og á Englandi. Á Íslandi lék hann með Val, ÍR, Tindastóli og Breiðabliki, skoraði að meðaltali 21,7 stig í 82 leikjum. Hann lék 53 A-landsleiki, en megnið af sínum ferli var hann útilokaður frá landsliðinu samkvæmt reglum FIBA, rétt eins og aðrir atvinnumenn í íþróttinni. Pétur hefur einnig komið mikið að þjálfun félagasliða sem og þjálfun fyrir hávaxna leikmenn. Hávaxnir leikmenn hér heima hafa ávallt geta leitað til Péturs til að fá góðar ráðleggingar til að bæta sig sem leikmenn.
Í byrjun árs 2001 var Pétur kjörinn leikmaður 20. aldarinnar í karlaflokki, af KKÍ og um leið leikmaður í liði aldarinnar.

Þeir sem hafa verið teknir inn í Heiðurshöll ÍSÍ eru Vilhjálmur Einarsson, Bjarni Friðriksson, Vala Flosadóttir, Jóhannes Jósefsson, Sigurjón Pétursson, Albert Guðmundsson og Kristín Rós Hákonardóttir.

Sjá nánar á vef ÍSÍ hérna.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Úr viðureign Skallagríms og Breiðabliks í 2. deild kvenna tímabilið 2007-08. Rósa Indriðadóttir, leikmaður Skallagríms, keyrir upp völlinn á meðan Ragnhildur Theodórsdóttir, leikmaður Breiðabliks eltir hana uppi.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið