© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
13.10.2014 | 21:18 | Kristinn | Bikarkeppni KKÍ
Dregið í 32-liða úrslit Poweradebikarsins


Í dag þriðjudaginn 14. október verður dregið í 32-liða úrslit Poweradebikarsins en drátturinn fer fram í fundarsal á 3. hæð íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardalnum og hefst drátturinn kl. 12.00.

Nákvæmlega 32 lið eru skráð til leiks hjá körlum og því engin forkeppni neðri deildar liða í ár. 16 lið eru skráð til leiks hjá konum og verður dregið í viðureignir þeirra í næsta bikardrætti, og þá bæði í 16-liða úrslit karla og kvenna.

Sýnt verður beint frá drættinum á Sporttv.is

Boðið verður upp á léttar veitingar fyrir gesti en Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, mun njóta aðstoðar tveggja reynslubolta úr Körfuboltafjölskyldunni við að draga í fyrstu umferð Poweradebikarsins en það verða þeir Kolbeinn Pálsson og Þórir Magnússon í verkefnið. Kolbeinn varð 7 sinnum bikarmeistari með KR 1970-1979 og Þórir þrisvar sinnum með Val á árunum 1980-1983.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Bikarmeistarar Keflavíkur 1994. Aftari röð frá vinstri: Lóa Gestsdóttir, Hanna Kjartansdóttir, Elínborg Herbertsdóttir, Erla Þorsteinsdóttir, Sigurður Ingimundarson þjálfari, Ingibjörg Emilsdóttir og Gunnhildur Theódórsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Guðlaug Sveinsdóttir, Olga Færseth, Björg Hafsteinsdóttir, Anna María Sveinsdóttir, Anna María Sigurðardóttir, Þórdís Ingólfsdóttir og Árný Árnadóttir
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið