© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
11.12.2003 | 11:09 | phs
Glæsilegur sigur Keflvíkinga
Keflvíkingar unnu glæsilegan sigur á franska liðinu Hyeres Toulon í gærkvöldi með 82 stigum gegn 78 (44-46).

Nánari lýsingu á leiknum má finna á heimasíðu Keflvíkinga og tölfræðina má sjá á heimasíðu FIBA - Europe.

Framhaldið
Keflvíkingar eru öruggir með sæti í átta liða úrslitakeppni vesturdeildarinnar en þar verður leikið 20. og 23. janúar og ef með þarf 28. janúar. Leikið verður þannig að sigurvegarinn í A-riðli, A-1 leikur gegn neðsta liðinu í B-riðli B-4 heima og heiman. A-2 leikur gegn B-3, B-1 gegn A-4 og B-2 gegn A-3. Til að komast áfram þurfa liðin að sigra í tveim leikjum. Fyrri leikurinn fer fram á heimavelli þeirra liða sem lenda í 1 eða 2 sæti riðlanna og ef með þarf þá fer þriðji leikurinn einnig fram á heimavelli þeirra. Það er því afar mikilvægt fyrir Keflvíkinga að lenda í öðru af tveimur efstu sætunum. Það þýðir veikari mótherjar í 8 liða úrslitum sem og heimavallarrétt, en Keflvíkingar hafa sannarlega sýnt fram á mikilvægi hans í Evrópukeppninni hingað til.

Næstu leikir Keflvíkinga í keppninni eru 16. og 18. desember þegar liðið leikur gegn portúgölsku liðunum Overanse og Madeira.
Sigri Keflvíkingar í báðum leikjunum lenda þeir í efsta sæti og mæta liðnu í 4 sæti í A-riðlinum.
Sigri Keflvíkingar Overanse þá lenda þeir í efsta sæti og mega tapa fyrir Madeira.
Tapi Keflavík fyrir Overanse en sigri Madeira lendir liðið í 2 sæti riðilsins.
Tapi liðið báðum útileikjunum lenda þeir í 2 sæti ef Overanse vinnur Toulon en í 3. sæti ef Toulon vinnur Overanse því Toulon er með hagstæðara stigaskor úr innbyrðisleikjum liðanna.

Draumurinn

Nái Keflvíkingar hagstæðu sæti í riðlinum og vinni svo mótherja sína í 8 liða úrslitum þá tryggir liðið sér sæti í úrslitum vesturdeildarinnar - "final - four". Þar er leikið á heimavelli einhvers liðsins sem kemst í úrslitin og er leikið með sama fyrirkomulagi og við leikum Hópbílabikarinn hér á landi. Þeir leikir fara fram 27. og 28. febrúar.

Hvað svo?
Sigurvegari vesturdeildarinnar mætir svo sigurvegurum norðurdeildarinnar, suðurdeildarinnar og miðdeildarinnar í úrslitum bikarkeppni Evrópu. Leikið verður með sama fyrirkomulagi og í úrslitum deildanna, þ.e. "final four". Þeir leikir fara fram 27. og 28. mars.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Lið Hauka á leið til Akureyrar með leiguflugi árið 1983.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið