© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
8.12.2003 | 15:27 | bl
Ívar Ásgrímsson nýr landsliðsþjálfari kvenna
KKÍ hefur ráðið Ívar Ásgrímsson sem landsliðsþjálfara kvenna í körfuknattleik. Ívar er ráðinn til næstu tveggja ára, fram á haustið 2005. Ívar Ásgrímsson er núverandi þjálfari kvennaliðs ÍS, en mun láta af því starfi í vor.

Ívar hefur mikla reynslu bæði sem leikmaður og þjálfari í körfuknattleik. Hann hóf ferlil sinn sem leikmaður í úrvalsdeildinni árið 1983 og lék í deildinni fram til ársins 1997. Alls lék hann 305 leiki í deildinni, lengst af með Haukum en einnig með Snæfell og ÍA þar sem hann þjálfaði einnig. Ívar hefur leikið 15 landsleiki með A-landsliði Íslands á 1986 - 1991

Ívar hefur starfað lengi við þjálfun og hefur þjálfað bæði mfl. karla og kvenna. Hann hóf þjálfaraferilinn í mfl. kvenna hjá Haukum árið 1989 og þjálfaði liðið í tvö ár. Hann hefur þjálfað mfl. karla hjá Snæfelli, ÍA og Haukum. Sl. tvö keppnistímabil hefur hann verðið þjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍS. Ívar þjálfaði unglingalandslið karla U-19 tímabilið 1997-1998.

Íslenska landsliðið mun taka þátt í Promotion Cup – Evrópukeppni "smærri" þjóða – sem haldin verður í Andorra í júlí 2004. Enn fremur mun liðið taka þátt í Norðurlandamóti kvennalandsliða sem haldið verður í Svíþjóð í ágúst 2004. Stefnt er að því að liðið fái æfingaleiki næsta vor og er unnið að því að svo geti orðið.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Sigurvegarar á MIX götuboltamótinu sem fram fór 1. júlí 2007 í brakandi blíðu.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið