© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
17.8.2000 | 13:10 | BL
Pétur Guðmundsson með námskeið fyrir miðherja/framherja
Fyrsta námskeiðið fyrir hávaxna leikmenn á þessu hausti verður haldið 1.-3. september nk. Pétur Guðmundsson mun hafa umsjón með námskeiðinu, en meiningin er að Pétur verði með fleiri slík námskeið á næstunni. Námskeiðið er ætlað fyrir "póstmenn" (framherja og miðherja, aðallega 4 og 5), bæði stráka og stelpur. Þau munu ekki æfa á móti hvert öðru, en gera sömu æfingarnar. Tilgangur þessa námskeiðs er fyrst og fremst að fara yfir undirstöðuatriði í "pósthreyfingum", vörn og sókn, sem og ýmis tækniatriði sem stundum verða útundan hjá stærri krökkum. Einnig að gefa krökkunum tækifæri til þess að stunda þessar æfingar með og á móti öðrum krökkum í svipuðum stærðarflokki og getu, sem þau kannski fá ekki tækifæri til dags daglega. Einnig verður farið yfir ýmis atriði varðandi undirbúning, s.s. næringu, styrktarþjálfun og möguleika á framhaldsnámi í USA fyrir körfuknattleiksmenn.
Þetta námskeið verður haldið dagana 1. 2. og 3. sept. í íþróttahúsi Kennaraháskólans við Háteigsveg í Reykjavík. Skráning á námskeiðið er hjá Pétri Guðmundssyni í síma 588 0218 eða á peturkarl@simnet.is
Æfingatímar verða sem hér segir:
Fös. 1. sept. 18:00 - 19:45
Lau. 2. sept. 9:00 - 11:00 og 14:00 - 16:00
Sun. 3. sept. 9:00 - 11:00 og 14:00 - 16:00
Aldur: 14 - ?(aldrei of seint að læra)
Þátttökugjald verður 5.000 kr. á mann.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkur og Benedikt Guðmundsson þjálfari KR í viðtali fyrir fjórða leik KR og Njarðvíkur í úrslitum Íslandsmótsins 2007.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið