© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.12.2003 | 11:36 | bl
Lægsta stigaskor liðs í tæp 4 ár
Aðeins 16 sinnum í sögu úrvalsdeildarinnar (1978-2003) hefur lið skorað minna 50 stig í leik. Í gærkvöld varð Þór Þorlákshöfn 11. félagið til að verða þessa vafasama heiðurs aðnjótandi er liðið skoraði 48 stig á heimavelli gegn 70 stigum Hauka. Hér er um lægsta stigaskor í úrvalsdeild að ræða í tæp 4 ár eða síðan KFÍ skoraði 45 stig gegn 92 stigum Keflavíkur 15. febrúar 2000.

Í 26 ára sögu úrvalsdeildarinnar hefur lið 17 sinnum áður skorað minna en 50 stig í leik. Lægsta stigaskor liðs í deildinni er 40 stig hjá Breiðabliki gegn Val 18. október 1987 í leik sem Valur vann 88-40.

Eftirfarandi eru leikir í úrvalsdeild þar sem annað liðið hefur ekki náð að skora 50 stig:

40 Breiðablik 18. október 1987 Valur – Breiðablik 88-40

42 ÍS 20. nóvember 1988 UMFN – ÍS 90-42

43 Breiðablik 19. febrúar 1988 Breiðablik – KR 43-92

44 Ármann 14. febrúar 1981 Ármann – ÍR 44-76

45 ÍA 17. október 1999 ÍA – Hamar 45-54
KFÍ 15. febrúar 2000 KFÍ – Keflavík 45-92

46 Ármann 30. janúar 1981 UMFN – Ármann 102-46

47 Fram 9. nóvember 1986 Fram – Haukar 47-67
ÍS 2. október 1988 Valur – ÍS 114-47
Snæfell 29. september 1994 Snæfell – Skallagr. 47-63

48 Breiðablik 15. nóvember 1987 KR – Breiðablik 86-48
ÍS 6. október 1988 ÍS – UMFG 48-93
ÍS 2. febrúar 1989 ÍS – KR 48-79
Þór Þorl. 4. desember 2003 Þór Þorl. – Haukar 48-70

49 Fram 28. október 1986 Fram – Valur 49-57
Haukar 10. október 1989 KR – Haukar 62-49
Tindastóll 23. febrúar 1995 Tindastóll – UMFG 49-63
Valur 5. október 1995 Valur – Skallagrímur 49-78
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Páll Kristinsson, leikmaður UMFG, og Sigmundur Már Herbertsson, FIBA-dómari, ræða saman í bikarúrslitaleik karla 18. febrúar 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið