© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
28.11.2003 | 17:12 | phs
Körfuboltinn kominn út
KKÍ hefur gefið út blaðið Körfuboltann 2003 - 2004.
Um er að ræða 80 síðna glæsilegt blað sem er allt í lit.
Ritstjóri blaðsins er Tómas Gunnar Viðarsson og um umbrot og útlit sá Eggert Baldvinsson. Sjást þeir hér á myndinni með Ólafi Rafnssyni formanni KKÍ.

Í tímaritinu eru viðtöl við Jón Arnór Stefánsson og Donnie Nelson yfirmann körfuboltamála hjá Dallas. Kennir þar margra grasa.
Enn fremur er umfjöllun um liðin í Intersportdeildinni og í 1. deild kvenna ásamt fjölda greina og viðtala við leikmenn og dómara.

Blaðinu verður dreift frítt í öllum verslunum Nóatúns og í verslunum Intersport nú um helgina. Enn fremur munu félögin fá eintök til að dreifa til sinna félagsmanna. Þeir sem ekki geta beðið skulu drífa sig í næstu Nóatúnsbúð eða í Intersport. Þeir verða ekki sviknir af blaðinu.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Landslið karla sem lék í C riðli Evrópukeppninnar í Sion í Sviss í apríl 1981. Aftari röð frá vinstri: Agnar Friðriksson fararstjóri, Kristinn Stefánsson aðstoðarþjálfari, Steinn Sveinsson fararstjóri, Torfi Magnússon Val, Símon Ólafsson Fram, Pétur Guðmundsson Val, Jónas Jóhannesson Njarðvík, Valur Ingimundarson Njarðvík, Gísli Gíslason ÍS og Einar Bollason þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Gunnar Þorvarðarson Njarðvík, Jón Sigurðsson KR, Kristinn Jörundsson ÍR, Ríkharður Hrafnkelsson Val, Ágúst Líndal KR og Kristján Ágústsson Val.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið