© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
22.9.2014 | 9:54 | Kristinn
Þjálfaramenntun ÍSÍ
Fjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun á 1. 2. og 3. stigsi hefst mánudaginn 29. september. Opið er fyrir skráningar til föstudagsins 26. september á viðkomandi námskeið.

Nánar
Haustfjarnám 1. 2. og 3. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 29. sept. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á hinum stigunum. Nám allra stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur og gildir námið jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda.

Þátttökugjald á 1. stig er kr. 25.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði og send á heimilisföng þátttakenda. Þátttökugjald á hin stigin er kr. 18.000.-

Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið fyrir föstudaginn 26. sept. Með skráningu þarf að fylgja fullt nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer og taka þarf skýrt fram á hvaða stig verið er að skrá. Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi.

Allar nánari uppl. um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467 & 863-1399 eða á vidar@isi.is.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá forkeppni Evrópumóts landsliða í Lugano í Sviss árið 1995.  Íslenska liðið ásamt þjálfurunum Torfa Magnússyni og Jóni Sigurðssyni.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið