© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
1.10.2003 | 17:04 | bl
Leikið til úrslita í héraðsmótunum
Annað kvöld, fimmtudagskvöld, fer fram úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins þegar KR og ÍR mætast í DHL-höllinni kl.19:15. Þá fara einnig fram í íþróttahúsi Njarðvíkur úrslitaleikir Reykjanesmótsins. Njarðvík og Grindavík munu leika um þriðja sætið klukkan 19:00 og Keflavík og Haukar um Reykjanesmeistaratitilinn klukkan 21:00.

KR-ingar mæta með sitt sterkasta lið, utan þess sem Baldur Ólafsson er hvíldur og Herbert Arnarsson er enn meiddur.
ÍR-ingar leika án Kevin Grandbergs sem er ekki orðinn löglegur, og án erlends leikmanns, eftir að Nate Pointdexter (fyrrum leikmaður Hamars) mætti ekki til landsins í gær og var samningnum við hann rift. Bæði liðin eru taplaus í Reykjavíkurmótinu, hafa unnið fjóra leiki hvort. Liðin mættust þrisvar á síðustu leiktíð þar sem þau unnu hvort sinn leikinn í deildinni, en ÍR-ingar slógu KR út í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar.

Haukar hafa unnið alla sína leiki í Reykjanesmótinu og margir leikjanna í mótinu hafa verið hraðir og skemmtilegir. Miðaverð er aðeins 500 krónur og gildir miðinn á báða leikina. Eru stuðningsmenn liðanna hvattir til að mæta og hita upp fyrir komandi tímabil.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Björgvin Rúnarsson og Sigmundur Már Herbertsson á leið að fara dæma leik saman á Smáþjóðaleiknum á Kýpur 2009. Var þetta í fyrsta skipti sem tveir íslenskir dómarar dæma saman leik á Smáþjóðaleikunum.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið