© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
26.9.2003 | 20:18 | phs
Nýjar leikreglur
FIBA hefur ákveðið að gera nokkrar breytingar á leikreglunum í körfuknattleik.
Þær eru helstar að nú verður dómarakast fellt niður nema í upphafi leiks, leikhlé sem þjálfarar fá að taka breytast og reglur um 24 sekúndna klukkuna breytast. Hægt er að sjá breytingarnar í leikreglum um körfuknattleik hér á síðunni og þar eru jafnframt raunhæf dæmi.

Dómarakast verður nú eingöngu tekið í upphafi leiks, við upphaf 3 leikhluta og við upphaf framlenginga. Annars verður notuð svokölluð víxlregla þannig að þegar aðstæður sem hefðu leitt til dómarakasts koma upp, fá liðin knöttinn til skiptist. Svokölluð stefnuör verður á ritaraborðinu sem gefur til kynna hvaða lið á rétt á knöttinum hverju sinni.
Þjálfarar geta tekið tvö leikhlé í fyrri hálfleik, óháð leikhlutanum og þrjú í þeim seinni. Þannig geta þjálfarar tekið öll þrjú leikhléin sín í síðari hálfleik t.d. á síðustu mínútu leiksins.
Nú verður leikur ekki stöðvaður þegar 24 sekúndna klukkan rennur út og knötturinn er í loftinu eftir körfuskot eins og áður var. Fari knötturinn af hringnum og út á völl verður barátta um frákast og leikklukkan stöðvar ekki. Með því verður ekki um óþarfa tafir á leiknum, hann verður bæði hraðari og skemmtilegri fyrir vikið.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Axel Kárason tekur hér eitt af sínum fyrstu körfuboltaskotum á ævinni á heimatilbúna körfu í Sólheimum í Blönduhlíð þar sem hann bjó.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið