© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
23.9.2003 | 14:15 | bl
Harlem Ambassadors í heimsókn
Harlem Ambassadors munu spila við Suðurnesjarisana annað kvöld, miðvikudaginn 24 sept kl. 19:15 í íþróttahúsi Keflavíkur við Sunnubraut.

Í liði Suðurnesjarisa verða menn eins og Guðjón Skúlason, Sigurður Ingimundarson, Stefán Bjarkason og vonir standa til að Jón Kr. Gíslason verði með líka. Einnig vonumst við til að fá bæjarstjóra bæði Grindavíkurbæjar og Reykjanesbæjar í liðið.

Öllum 5-10 bekkingum í grunnskólum Grindavíkur og Reykjanesbæjar verður boðið á sýningu fyrr um daginn í íþróttahúsinu við Sunnubraut, en Harlem Ambassadors eru hér í boði Grindavíkurbæjar og Reykjanesbæjar en einnig standa nokkrir einkaaðilar að heimsókninni eins og Sparisjóðurinn í Keflavík, Hótel Keflavík, Bláa Lónið og RV Ráðgjöf Verktaka ehf.

Leikurinn er liður í fjáröflun fyrir yngri flokka starf kkd. Grindavíkur og Keflavíkur og munu yngri flokka leikmenn þessara félaga ganga í hús og selja miða í forsölu en einnig fást miðar í SpKef í Keflavík og Grindavík.

Miðaverð er aðeins 1000 kr. og fá allir 9 ára og yngri frítt inn í fylgd með fullorðnum.

Harlem Ambassadors munu einnig leika í Laugardalshöllinni í Reykjavík á föstudag og í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði á sunnudaginn kl. 16.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Fjölnir · Íslandsmeistarar 11. flokks drengja 2009
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið