© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
31.8.2003 | 10:00 | bl
Kynning á hugbúnaði fyrir þjálfara
Laugardaginn 6. september mun Brynjar Karl Sigurðsson halda kynningu á hugbúnaði Sideline Sports. Hugbúnaðurinn sem um ræðir er Sideline Organizer, Sideline Video Analyzer og Sideline Video Editor. Kynningin byrjar kl. 12:00 í fundarsal ÍSÍ í Laugardal (Íþróttamiðstöðin Laugardal, 104 Reykjavík).

Sideline Organizer er skipulagstól fyrir þjálfara í körfubolta, fótbolta, handbolta, blaki, tennis, júdó, badminton o.s.frv.

Sideline Video Analyzer er mjög fullkomið leikgreiningartól fyrir ofangreindar íþróttagreinar. Sideline Video Editor er myndvinnsluforrit.

Í lok kynningar verður notendum boðið uppá námskeið þeim að kostnaðarlausu. Við skorum á þá þjálfara sem nota hugbúnaðinn að mæta á svæðið, kynna sér nýjungar og skerpa sögina. (komið með ferðavélarnar!) Aðra þjálfara hvetjum við til að kynna sér hvernig nýta má tölvur til að gera starf sitt áhrifameira og markvissara.

Eins og áður gerir Sideline Sports íslenskum íþróttaþjálfurum kleift að kaupa hugbúnaðinn á lægra verði. Boðið verður uppá sérstakt kynningarverð.

Brynjar Karl hefur ferðast vítt og breitt um Bandaríkin í sumar og haldið erindi á ráðstefnum fyrir þjálfara. Brynjar starfaði síðasta vetur sem ráðgjafi fyri NBA-lið Memphis Grizzlies. Nýlega þáði Brynjar boð hins fræga körfukboltaþjálfara Don Meyer, um að ferðast með honum og halda erindi á námskeiðum og ráðstefnum þar sem hann kemur fram. Brynjar mun einnig tala á ráðstefnu bandaríska tennissambandsins USTA í byrjun næsta árs.

Aðilar sem nota hugbúnað frá Sideline Sports: Aston Villa, Bolton, Sunderland, Ipswitch, Breska knattspyrnusambandið, Memphis Grizzlies NBA, New York Liberty WNBA, Georgia Tech, University of Alabama, University of Mississippi. University of South Carolina. University of Memphis, Wake Forrest University. University of Iowa. Northen State University, University of Wisconsin Milwaukee,

Birmingham Southern College, Illinois State University ásamt fjölda annarra bandarískra háskóla og miðskóla.

Innlendir: Landsliðþjálfarar KSÍ, Guðmundur Guðmundsson HSÍ, Friðrik Ingi Rúnarsson KKÍ, Knattspyrnuþjálfarar yngriflokka KR, ÍA, FH, Fylkis og Breiðabliks, Íþróttakennarháskóli Íslands.

Nánari upplýsingar vetir Hrafn Jóhannesson Sideline Sports USA
johannesson@sidelinesports.com
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Sveinbjörn Classen í leik á landsmótinu með ÍBR (Íþróttabandalag Reykjavíkur) sem notaði búninga KR á mótinu. Sveinbjörn er uppalinn- og núverandi leikmaður erkifjendana í ÍR.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið