© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.8.2003 | 11:32 | bl
16 piltar í æfingabúðir Laszlo Nemeth í Englandi
16 ungir piltar eru nú staddir í Englandi til þess að taka þátt í Eurocamp körfuboltabúðunum í Barrow-in-Furness í Cumbria. Þessum búðum er stjórnað af Ungverjanum Laszlo Nemeth, sem Íslendingum er af góðu kunnur síðan hann þjálfaði bæði KR og íslenska landsliðið fyrir rúmum 10 árum.

Með piltunum í ferðinni verður Pétur Guðmundsson, fyrrv. NBA leikmaður, og mun hann jafnframt þjálfa í búðunum. 15 piltanna eru á aldrinum 12-14 ára en einn er 20 ára. Afturelding á 5 fulltrúa í þessum hóp þrátt fyrir að vera ekki enn formlega búin að stofna körfuknattleiksdeild. Slíkur er áhuginn í Mosfellsbæ!! Öllum piltunum verður skipt í hópa eftir aldri og getu, en alls verða um 150 þátttakendur í búðunum 7 löndum, þannig að þetta verður mikið ævintýri fyrir drengina og mikil vinna! Æfingar og leikir standa yfir frá sunnudegi til föstudags og munu piltarnir koma heim aftur laugardaginn 9. ágúst.

Þeir sem fara eru:
Jens Gísli Heiðarsson og Sindri Már Kárason úr Fjölni,
Arnór Hauksson úr ÍR
Atli Rafn Hreinsson, Bjarki Hjörleifsson, Gylfi Þór Rögnvaldsson og Björgvin Rúnar Valentínusson úr Snæfelli
Davíð Arnar Ragnarsson úr Tindastóli
Jónas Aðalsteinn Aðalsteinsson og Bjarki Atlason úr Stjörnunni
Bjarni Þór Kristjánsson, Daníel Ægir Kristjánsson, Sveinn Ingi Árnason, Jón Ingi Kristinsson og Óskar Axel Óskarsson úr Aftureldingu.
Magnús Þór Gylfason úr KR.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Úr viðureign Skallagríms og Breiðabliks í 2. deild kvenna tímabilið 2007-08. Rósa Indriðadóttir, leikmaður Skallagríms, keyrir upp völlinn á meðan Ragnhildur Theodórsdóttir, leikmaður Breiðabliks eltir hana uppi.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið