© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.6.2003 | 9:37 | phs
Tap gegn Kýpur
Íslenska kvennalandsliðið tapaði öðrum leik sínum á Smáþjóðaleikunum nú í morgun þegar liðið mætti Kýpur með 49 stigum gegn 66. Staðan í hálfleik var 27-27.

Íslensku stúlkurnar áttu góðan fyrri hálfleik og stóðu fyllilega í sterku liði Kýpur. Baráttan var í lagi og tók liðið 32 fráköst í hálfleiknum, þar af 9 sóknarfráköst. En eins og í fyrri leik liðsins gegn Möltu hrökk allt i baklás i þriðja leikhluta. Liðið gerði aðeins 8 stig gegn 21 stigi Kýpurbúa, hittu aðeins úr 2 af 10 skotum sínum, tapaði boltanum 7 sinnum og annar ósigur liðsins var staðreind.

Atkvæðamestar i liði Íslands voru Birna Valgarðsdóttir með 13 stig og 12 fráköst, Signý Hermannsdottir 8 stig (10 fráköst), Hildur með 8 stig og 6 fráköst og Rannveig Randversdóttir með 8 stig. Erla og Helga Þorvaldsdóttir gerðu 4 stig hvor, Kristín Blöndal 2 og Hanna Kjartansdóttir og Sólveig Gunnlaugsdóttir voru með eitt stig hvor.

Myndin er af Birnu Valgarðsdóttur sem var stigahæst og frákastahæst í íslenska liðinu.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Signý Hermannsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins, stappar hér stálinu í liðsfélag sinn Helgu Einarsdóttur sem var að koma inn á í sínum fyrsta landsleik gegn Sviss að Ásvöllum 27. ágúst 2008.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið