© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
3.6.2003 | 12:55 | phs
Tap gegn Möltu
Íslenska kvennalandsliðið tapaði fyrsta leik sínum á Smaþjóðaleikunum gegn Möltu með 59 stigum gegn 47. Staðan í hálfleik var 35 - 28 Íslandi í vil.

Íslenska liðið lék ágætlega í fyrri hálfleik og hafði yfirhöndina. Í síðari hálfleik hrundi leikur liðsins. Í 3. leikhluta gerði liðið aðeins 4 stig og 8 í þeim fjórða. Skot leikmanna vildu einfaldlega ekki ofaní. Liðið var að fá opin skot en niður vildi boltinn einfaldlega ekki.
12 stiga tap gegn frekar slöku liði Möltu var því staðreynd.
Liðið mætir Kýpur á fimmtudag kl. 09.00 en Kýpurbúar unnu Lúxemborg með 70 stigum gegn 63 nú í morgun. Er þá að duga eða drepast fyrir íslenska liðið.

Stigin skiptust þannig að Erla Þorsteinsdóttir var með 15 stig, Kristín Blöndal 9, Birna Valgarðsdóttir og Rannveig Randversdóttir 5, Alda, Marín, og Sólveig með 3 stig, öll úr þriggja stiga tilaunum.

Skotnýting liðsins var slök, aðeins 30%
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Njarðvíkingar urðu Íslandsmeistarar karla 1998 eftir úrslitaeinvígi við KR. Aftari röð frá vinstri, Brynjar Ásmundsson vatnsberi, Gunnar Þorvarðarson formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, Einar Árni Jóhannsson aðstoðarþjálfari, Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari, Örvar Kristjánsson, Kristinn Einarsson, Páll Kristinsson, Petey Sessoms, Ægir Gunnarsson, Sævar Garðarsson, Sara Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari og Bjarni Bragason vatnsberi. Fremri röð frá vinstri: Teitur Örlygsson með dóttur sína Ernu Lind í fanginu, Guðjón Gylfason, Ragnar Ragnarsson, Friðrik Ragnarsson, Logi Gunnarsson og Örlygur Sturluson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið