© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
28.5.2003 | 10:10 | bl
60 manna hópur frá KKÍ utan í morgun
Stærsti hópur sem nokkru sinni hefur farið til útlanda á vegum KKÍ, hélt utan í morgun þegar unglingalandsliðin héldu til Stokkhólms á Norðurlandamótið. Í hópnum er alls 59 manns, leikmenn, þjálfarar, dómarar og fararstjórar.

Í hópnum eru 16 ára landslið karla og kvenna og 18 ára landslið karla og kvenna. Liðin munu taka þátt í Norðurlandamótinu sem hefst í Solna í Stokkhólmi á morgun. Alls munu landsliðin leika um 20 landsleiki samtals í ferðinni.

Fararstjórar í ferðinni eru Hannes Jónsson varaformaður KKÍ og Gísli Georgsson stjórnarmaður. Fréttir af gengi liðanna verða reglulega hér á kki.is og á síðu mótsins er hægt að sjá leikjaniðurröðunina. Norðurlandamótið er hluti af stærra móti, Del Monte Challange, en með því að smella á linkinn "Landslag" kemur dagskrá Norðurlandamótsins í ljós.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Verðlaunahafar á lokahófi KKÍ 1988, í gamla Broadway í Mjódd.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið