© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
2.9.2014 | 9:55 | Kristinn
Umsóknir fyrir erlenda leikmenn · Breytingar á umsóknum m/ Self-Decleration
Framundan er sá tími þegar umsóknir um leikheimildir erlendara leikmanna fyrir komandi tímabil fara að berast skrifstofu KKÍ. KKÍ og UTL hafa undanfarin ár unnið saman við að hafa þessi mál í föstu ferli til hagræðingar fyrir alla aðila.

Sama ferli fyrir umsóknir erlendra leikmanna er í gildi og var á síðastliðnu tímabili. Félög sækja um til UTL með þeim gögnum sem farið er fram á og skila inn umsókn til KKÍ á eftir. UTL sendir KKÍ og umboðsmanni félagsins sem skilaði inn umsókninni síðan staðfestingu á að leikmaður sé kominn með atvinnu- og dvalarleyfi og þá fyrst má hann koma til landsins. Hægt er að sjá leiðbeiningar og upplýsingar um ferlið hér á KKI.is undir „Erlendir leikmenn“.

Enginn erlendur leikmaður fær leikheimild hjá KKÍ nema að UTL hafi staðfest atvinnu- og dvalarleyfi og að öll gögn önnur hafi borist frá félögunum til KKÍ.

KKÍ bendir öllum félögum á að óska eftir beiðnum um leikheimildir erlendis frá tímanlega. Hægt er að óska eftir því að KKÍ útvegi LOC (Letter Of Clearance) strax frá því landi þaðan sem leikmaðurinn er að koma. Sú vinna má fara fram á meðan aðrir pappírar og umsóknir eru í vinnslu hjá t.d UTL.

Breyting á Self-Decleration
Ein breyting hefur verið boðuðu frá FIBA en hún er sú að ekki er lengur hægt að skila Self-Decleration skjali fyrir leikmenn sem koma beint úr háskóla í Bandaríkjunum. Sækja þarf um hefðbundið LOC núna til USA Basketball og mun skrifstofa KKÍ sjá um það eins og með önnur LOC til annara sérsambanda.

FBI-vottorð:
Við minnum á að skila þarf inn FBI-vottorði fyrir leikmenn með bandarískt vegabréf í frumriti ásamt öllum öðrum hefðbundum umsóknargögnum líkt og áður þegar umsókn um atvinnu- og dvalarleyfi er skilað inn til UTL.

Til að leysa þann biðtíma sem FBI gefur upp hefur UTL bent á að notast veitur (e. channels) sem eru umboðsaðilar FBI sem hafa leyfi til að gefa út sakavottorð. Þessar veitur gefa út vottorð á nokkrum dögum og því geta leikmenn notast við þær og sent vottorð með hraðpósti hingað heim, ásamt hinum umsóknargögnunum, til að félög geti skilað þeim í frumriti inn til UTL. Hér fyrir neðan er að finna nánari upplýsingar um þessar veitur.

Tala þarf beint við eina af þessum veitum sem uppgefnar eru hér fyrir neðan og fá upplýsingar um umsóknarferlið.


Lista yfir veitur/channels er að finna hér
.

*Við mælum sérstaklega með accuratebiometrics veitunni sem hefur reynst vel.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá leik Hauka og UMFN í úrslitakeppni íslandsmótsins í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði árið 1985. Miklar deilur urðu um lokakörfu leiksins.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið