© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
8.5.2003 | 14:23 | bl
Þór Þorl. á heimavelli gegn ÍR
Á ársþingi KKÍ sem haldið var í Stykkishólmi um síðustu helgi var dregið í töfluröð fyrir Intersport-deildin, 1, deild kvenna og 1. deild karla fyrir nk. keppnistímabili. Nýliðar Þórs Þorl. fá heimleik gegn ÍR í 1. umferð deildarinnar, en Þorlákshafnarliðið hefur aldrei fyrr leikið í efstu deild.

Ísfirðingar, sem koma aftur upp í deildin næsta vetur, fá sömuleiðis heimaleik. Mótherjar þeirra verða Haukar úr Hafnarfirði. Deildarmeistarar UMFG fá granna sína úr UMFN í heimsókn í Röstina og Íslandsmeistarar Keflavíkur taka á móti Hamarsmönnum úr Hveragerði. Þá mætast einnig KR og Breiðablik í DHL-höllinni og fyrir norðan taka Tindastólsmenn á móti liði Snæfells.

Í 1. deild kvenna munu nýliðar ÍR taka á móti KR í Seljaskóla og Íslandsmeistarar Keflavíkur fá UMFG í heimsókn.

Í 1. deild karla munu falllið Intersport-deildarinnar frá því í vetur, mætast í 1. umferð, Valur og Skallagrímur. Þá munu Þórsarar frá Akureyri fá heimaleik og leika við Reyni S.

Hægt er að sækja leikjaniðurröðun Intersport-deildar, 1. deildar kvenna og 1. deildar karla með því að smella á Mótahald hér til vinstri á vefnum. Ekki eru enn komnar dagsetningar á umferðirnar í deildunum, en fyrstu drög að niðurröðun með dagsetningum munu væntanlega liggja fyrir í lok júní eða byrjun júlí.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
A-landslið kvenna á röltinu í Belgrad sumarið 2008. Liðið var á keppnisferðalagi en stelpurnar léku við Svartfjallaland í ferðinni.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið