© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
20.4.2003 | 21:00 | óój
Íslenskir Norðurlandameistarar í Södertälje - 8. flokkur Njarðvíkur
8. flokkur karla hjá Njarðvík kórónaði frábæran vetur með því að verða Norðurlandameistarar í dag í keppni 14 ára og yngri á Scania Cup í Södertälje í Svíþjóð en hin árlega óopinbera Norðurlandakeppni yngri félagasliða fór fram að venju um páskanna. Njarðvík vann finnsku meistaranna í Porovoon, 62-44, í úrslitaleik en finnska liðið vann þennan árgang á Scania Cup í fyrra. Hjörtur Hrafn Einarsson var valinn Scania-kóngur og Njarðvík átti tvo leikmenn í úrvalsliðinu. Þetta er fjórði stóri titill strákanna í vetur, en þeir unnu Íslandsmeistararrtitilinn í 8. flokki og nánast sama lið varð síðan Íslands- og bikarmeistari í 9. flokki. Þjálfari Njarðvíkurliðsins er Einar Árni Jóhannsson.

Njarðvíkingar unnu alla fimm leiki sína í mótinu, unnu Söder frá Svíþjóð, 60-39, í undanúrslitaleiknum og Porovoon frá Finnlandi síðan, 62-44, í úrslitaleiknum. Ragnar Ólafsson skoraði 17 stig í úrslitaleiknum og var valinn maður leiksins en hann komst einnig í úrvalslið mótsins ásamt Hirti Hrafni Einarssyni sem var að auki valinn maður mótsins, fékk útnefninguna Scania-kóngur. Njarðvík er fimmta íslenska liðið til að vinna Scania-Cup, 82-árgangurinn hjá KR vann mótið 1996 og 1998, 82-árgangurinn hjá vann 1997 og 1983-árgangur Grindavíkinga urðu Scania-Cup meistarar 1996.

Stigahæstir hjá 8. flokki Njarðvíkur á mótinu:
21,4 stig að meðaltlai Hjörtur Hrafn Einarsson (3. stigahæstur í mótinu)
12,6 Elías Kristjánsson (16.)
12,0 Ragnar Ólafsson (19.)
8,6 Rúnar Ingi Erlingsson (32.)
5,8 Freyr Guðmundsson (44.)

Scania-meistarar Íslands:
Grindavík (1983, 13 ára og yngri) 1996
KR (1982, 14 ára og yngri) 1996
ÍR (1982, 15 ára og yngri) 1997
KR (1982, 16 ára og yngri) 1998
Njarðvík (1989, 14 ára og yngri) 2003

Þetta er ennfremur í 11. sinn sem við Íslendingar eignumst Scania-kóng í Södertälje. Herbert Arnarson hjá ÍR varð fyrstur íslenskra stráka til að hljóta þennan heiður á páskunum 1985 en hann er einn þriggja sem hlotið hefur hann tvisvar, hinir eru Jón Arnar Ingvarsson hjá Haukum og Jón Arnór Stefánsson í KR.

Scania-kóngar Íslands:
2 - Herbert Arnarson, ÍR (1985, 1986)
2 - Jón Arnar Ingvarsson, Haukum (1986, 1988)
2 - Jón Arnór Stefánsson, KR (1996, 1998)
1 - Márus Arnarson, ÍR (1988)
1 - Sæmundur Oddsson, Keflavík (1995)
1 - Ásgeir Ásgeirsson, Grindavík (1996)
1 - Hreggviður Magnússon, ÍR (1997)
1 - Hjörtur Hrafn Einarsson, Njarðvík (2003)

Af öðrum íslenskum liðum á mótinu er það að frétta að 9. flokkur Fjölnis endaði í 6. sæti, 7. flokkur karla hjá ÍR varð í 8. sæti, 7. flokkur kvenna hjá ÍR varð í 12. sæti og 9. flokkur kvenna hjá Njarðvík varð í 10. sæti. Fjölnismenn áttu annan (Emil Þór Jóhannsson, 18,8) og þriðja (Hörður Axel Vilhjálmsson, 18,4) stigahæsta mann í keppni liða skipuðum leikmönnum fimmtán ára og yngri.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá ferð U-20 ára landsliðs karla til Illinois í Bandaríkjunum árið 1982.  Leikur gegn Rockford College.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið