© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
   
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
15.4.2003 | 19:16 | óój
Njarðvíkingar með fimm fleiri titla en næsta félag - unnu 9 í vetur
Njarðvíkingar unnu níu Íslands- og bikarmeistaratitla hjá yngri flokkunum í vetur sem er sex titlum fleiri en Haukar og Fjölnir sem komu næst Njarðvík í titlum talið. Sex flokkar urðu Íslandsmeistarar hjá Njarðvík og þrír bikarmeistarar en Njarðvíkingar áttu sex flokka í átta bikarúrslitaleikjum sem er það mesta frá upphafi. Þá eru sex Íslandsmeistarartitlar það mesta sem félag hefur unnið síðan Keflvíkingar urðu sjöfaldir Íslandsmeistarar í yngri flokkum veturinn 1991-1992.

Titlar félaga hjá yngri flokkum 2002-2003:
9 Njarðvík (6 Íslandsmeistarar - 3 bikarmeistarar)
4 Haukar (3-1)
3 Fjölnir (2-1)
3 Keflavík (1-2)
1 Breiðablik (1-0)
1 Grindavík (1-0)
1 ÍR (0-1)

Titlar Njarðvíkinga í vetur:
Íslandsmeistararar: (Unglingaflokkur karla, Drengjaflokkur, 9. flokkur karla, 8. flokkur karla, 8. flokkur kvenna og Minnibolti kvenna).
Bikarmeistararar: (Drengjaflokkur, 11. flokkur karla, 9. flokkur karla).

Alls fengu Njarðvíkingar þrettán verðlaun á Íslandsmótum í og í bikarkeppni yngri flokkanna í vetur, unnu eins og áður sagði níu gull en fengu að auki fjögur silfurverðlaun. Þeir unnu því sex fleiri verðlaun en Fjölnir og Keflavík sem komu þeim næstir.

Flest verðlaun félaga hjá yngri flokkum 2002-2003:
13 Njarðvík (9 gull - 4 silfur)
7 Fjölnir (3-4)
7 Keflavík (3-4)
6 Haukar (4-2)
4 KR (0-4)
3 ÍR (1-2)
3 Grindavík (1-2)
1 Breiðablik (1-0)

Það eru ellefu ár síðan að eitt félag vann fleiri Íslandsmeistaratitla en Njarðvíkingar í vetur og er þetta þriðji besti árangur félags á Íslandsmótum síðan að flokkaskiptingunni var breytt fyrir tímabilið 1988 til 1989 en þá var flokkunum fjölgað. Njarðvíkingar hafa nú unnið tíu Íslandsmeistaratitla á síðustu tveimur árum.

Flestir Íslandsmeistarartitlar hjá yngri flokkum síðustu ár:
2003 Njarðvík 6 (4 hjá strákum - 2 hjá stelpum)
2002 Njarðvík 4 (4-0)
2001 KR 4 (4-0)
2000 Keflavík 5 (2-3)
1999 Keflavík 3 (1-2)
1998 KR 3 (2-1)
1997 Keflavík 4 (1-3)
1996 Keflavík 3 (1-2)
1995 Keflavík 5 (4-1)
1994 Keflavík 4 (1-3)
1993 Keflavík 4 (3-1) og KR 4 (3-1)
1992 Keflavík 7 (5-2)
1991 Keflavík 8 (5-3)
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Jason Dourisseau, leikmaður KR, var án efa maður dagsins á Stjörnudegi KKÍ, laugardaginn 13. desember, sem fram fór á Ásvöllum.

Jason sem lék með úrvalsliði Iceland Express og fór á kostum og var valinn besti maður leiksins, en þar skoraði hann 36 stig og tók 10 fráköst. Hann fór einnig á kostum í troðslukeppninni og sýndi glæsileg tilþrif í háloftunum en það fór svo að hann keppnina. Hér er hann með verðlaun sín eftir daginn.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið