© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
12.4.2003 | 21:54 | óój
Fimm úrslitaleikir í Höllinni á sunnudag
Fimm úrslitaleikir fara fram í Laugardalshöllinni á morgun sunnudag en seinni helgi úrslitanna hjá yngri flokkunum er nú í fullum gangi. Eftir undanúrslitaleiki dagsins er orðið ljóst hvaða lið leika í úrslitaleikjunum morgundagsins en fjörið hefst klukkan 10 með úrslitaleik í 9. flokki karla. Auk þriggja úrslitaleikja hjá 9. flokki karla, 11. flokki karla og 10. flokki kvenna þá fara fram úrslitaleikir í hjá B- (gamli unglingaflokkurinn) og C-liðum (gamli 1. flokkurinn) í 2. deild karla.

Fyrsti úrslitaleikurinn er klukkan 10:00 en þá berjast Njarðvík og Fjölnir um Íslandsmeistaratitlinn í 9. flokki karla. Njarðvík vann Keflavík, 42-33, í undanúrslitunum en Fjölnir komst í úrslit annað árið í röð og í þriðja skiptið á fjórum árum með 61-46 sigri á KR. Liðin mættust einnig í bikarúrslitaleiknum í mars og þá hafi Njarðvík betur, 58-51, en Fjölnisstrákarnir eru ríkjandi Íslandsmeistarar í þessum flokki.

Klukkan 11:45 hefst leikur ÍR og Fjölnis um Íslandsmeistaratitlinn í 11. flokki karla. ÍR vann KR, 85-63, í undanúrslitunum en Fjölnir komst í úrslit annað árið í röð og í þriðja skiptið á fjórum árum með 76-62 sigri á Þór frá Akureyri. Njarðvíkingar hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn í þessum aldursflokki frá því í 7. flokki (4 ár í röð) en þeir komust ekki í lokaúrslitin í ár.

Þriðji úrslitaleikur dagsins er milli Hauka og Keflavíkur um Íslandsmeistaratitlinn í 10. flokki kvenna. Haukastelpur unnu Kormák, 68-30, í undanúrslitunum og Keflavík komst í úrslit með 31-15 sigri á Skallagrími. Haukastúlkur geta varið Íslandsmeistarartitlinn, bæði í þessum flokki sem og í þessum árgangi en Haukar unnu bæði 9. og 10. flokk kvenna í fyrra.

Síðustu tveir úrslitaleikir dagsins eru í 2. deild karla. Klukkan 15:30 berjast Njarðvík og KR um sigurinn hjá B-liðum og klukkan 17:30 leika Ármann/Þróttur og Breiðablik til úrslita hjá C-liðum. Keppni B-liða er gamli unglingaflokkurinn (með liðstyrk) en C-liðin voru 1. flokkur fyrir breytingar.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Erlingur Hannesson, fararstjóri, og Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari U18 kk, stigu villtan stríðsdans þegar strákarnir í átján ára liðinu tryggðu sér Norðurlandameistaratitilinn í Solna í Svíþjóð í maí 2009. Strákarnir lögðu Finna í úrslitaleik og þeir félgar stóðust ekki mátið og tóku villt dansspor á parketinu í Solna við mikinn fögnuð viðstaddra.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið