© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
6.4.2003 | 18:37 | óój
Fjögur félög tryggðu sér Íslandsmeistaratitla í Höllinni
Fjögur félög, Keflavík, Njarðvík, Haukar og Fjölnir, tryggðu sér Íslandsmeistaratitla í Laugardalshöllinni í dag þegar fyrri hluta lokaúrslitanna lauk en seinni flokkarnir þrír auk 2. deildanna tveggja (B- og C-lið) fara fram um næstu helgi. Fjögur lið komast í lokaúrslitin í hverjum flokki sem eru spiluð um sömu helgi.

9. flokkur Keflavíkur, drengjaflokkur Njarðvíkur og 10. flokkur Fjölnis unnu þar með tvöfalt í vetur en Haukar bættu fyrir að hafa rétt misst af bikarnum í mars með því að verða Íslandsmeistarar í unglingaflokki kvenna annað árið í röð.

Keflavík vann Njarðvík, 60-48, í skemmtilegum og vel spiluðum úrslitaleik í 9. flokki kvenna. Keflavík hafði einnig 12 stiga forskot í hálfleik en liðið leiddi þá 37-25. Keflavíkurstúlkur urðu einnig bikarmeistarar á dögunum en liðið vann 24 stiga sigur á Njarðvík í bikarúrslitunum, 55-31. Njarðvíkurliðið veitti þeim mun meiri keppni í úrslitaleiknum í dag. Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill Keflavíkur í þessum flokki en Haukar höfðu unnið tvö fyrstu ár hans.
María Ben Erlingsdóttir var með 17 stig og 11 fráköst auk þess sem hún nýtti 9 af 10 vítum sínum í leiknum en það vakti athygli og aðdáun að Keflavíkurstúlkur voru með 94,7% vítanýtingu í úrslitaleiknum, hittu úr 18 af 19 vítum sínum. Bryndís Guðmundsdóttir lék einnig vel fyrir Keflavík en hún var með 15 stig, 10 fráköst og 7 stoðsendingar og þá var Linda Ásgeirsdóttir með 14 stig. Hjá Njarðvík var Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir með 22 stig og 16 fráköst.

Njarðvík er tvöfaldur meistari í drengjaflokki eftir, 92-88, sigur á Keflavík í öðrum úrslitaleik dagsins en Keflvíkingar voru nærri því búnir að vinna upp gott forskot Njarðvíkinga í lokin. Njarðvík vann Fjölni í bikarúrslitunum, 87-46 og hafa aðeins tapað einum leik í allan vetur. Þetta er fimmti Íslandsmeistaratitill Njarðvíkur í þessum flokki en Njarðvíkingar unnu drengjaflokkinn nú annað árið í röð.
Jóhann Árni Ólafsson átti mjög góðan leik fyrir Njarðvík en hann kom með 27 stig, 11 fráköst og 4 stoðsendingar inn af bekknum en Jóhann, sem er enn í 11. flokki, gerði þetta á 28 mínútum. Þá var Ólafur Aron Ingvason traustur með 24 stig og 12 stoðsendingar og Guðmundur Jónsson var með 16 stig og 10 fráköst. Hjá Keflavík var Halldór Örn Halldórsson með 26 stig, 17 fráköst og 6 varin skot en Halldór var með 25 stig og 28 fráköst þegar Keflavík vann Hauka,72-58, í undanúrslitunum. Sveinbjörn Skúlason var með 18 stig og 12 fráköst fyrir Keflavík.

Haukastúlkur eru Íslandsmeistarar í unglingaflokki kvenna annað árið í röð eftir, 74-65, sigur á Grindavík í þriðja úrslitaleik dagsins en Haukar misstu af bikarnum eftir, 54-57, tap fyrir Keflavík í æsispennandi bikarúrslitaleik í mars. Haukar unnu unglingaflokkinn í fyrsta í fyrra en þær unnu bikarmeistara Keflavíkur örugglega, 70-31, í undanúrslitunum og höfðu furmkvæðið í úrslitaleiknum allan tímann.
Helena Sverrisdóttir var með 35 stig, 16 fráköst, 7 stolna bolta og 5 stoðsendingar hjá Haukum, Pálína Gunnlaugsdóttirt gerði 16 stig og stal 6 boltum og Hanna Hálfdánardóttir var með 14 stig og 8 fráköst. Petrúnella Skúladóttir skoraði mest fyrir Grindavík eða 18 stig, Jovana Lilja Stefánsdóttir gerði 15 stig og Erna Rún Magnúsdóttir var með 9 stig og 10 stoðsendingar.

Fjölnistrákarnir eru tvöfaldir meistarar í 10. flokki karla eftir, 71-68, sigur á KR í síðasta úrslitaleik dagsins en Fjölnir vann einnig KR í bikarúrslitaleik flokksins í mars, unnu þá, 51-47, í úrslitaleik á Ásvöllum. Báðir úrslitaleikirnir voru taugastrekkjandi fyrir leikmenn og aðstandendur og oft munaði litlu að upp úr syði. Það fór svo að lokum að Fjölnir hafði betur og munaði það mikið um að byrjunarlið KR-inga hvíldi aðeins í þrjár mínútur í leiknum. Þetta er í annað sinn sem Fjölnir vinnur 10. flokk karla en þeir léku þá eftir afrek 10. flokks félagsins frá 1999 sem vann þá einnig KR, 63-62, í úrslitaleik.
Brynjar Þór Kristófersson var einnig fjögurra Fjölnismanna sem skoruðu yfir 10 stig í leiknum en Brynjar var með 18 stig, 5 fráköst, 5 stoðsendingar og 5 stolna bolta. Þeir Benedikt Skúlason, 14, Þorsteinn Sverrisson, 13 stig og Árni Ragnarsson, 12 stig og 5 stoðsendingar skoruðu einnig á annan tug stiga fyrir Grafarvogsliðið. Brynjar Björnsson hjá KR skoraði þá mest allra á vellinum eða alls 27 stig en Brynjar hitti úr 7 af 13 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Ellert Arnarson skoraði 18 stig og Darri Hilmarsson var með 9 stig, 17 fráköst og 6 stoðsendingar.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Signý Hermannsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, fær hér smá aðstoð frá liðsfélaga sínum Rögnu Margréti Brynjarsdóttur. Stelpurnar voru í Amsterdan að fara etja kappi við Holland. Hver mínúta er  greinilega nýtt í undirbúning.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið