S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
17.9.2007 | Hannes S. Jónsson
Evrópukeppnin á Spáni
FIBA-Europe bauð formönnum og framkvæmdastjórum aðildarlanda sinna á úrslit EM og því hef ég ásamt Friðiki Inga Rúnarsyni framkvæmdastjóra KKÍ verið hér í Madrid síðan á miðvikudag og tekið þátt í þeirri miklu skemmtun sem fer fram hér á EM og séð körfubolta í hæsta gæðaflokki. Það hefur verið fróðlegt að sjá hversu stór þessi keppni er og m.a. er hér samnkominn fjöldinn allur af stuðningsmönnum liðanna sem og körfuboltaáhugamenn frá öðrum heimshlutum. Evrópskur körfubolti hefur ekki verið í þeirri umfjöllun hjá okkur Íslendingum sem við körfuboltaáhugamenn hefðum viljað en ég vona að breyting verði á, á næstu misserum m.a. með fleiri íslenskum atvinnumönnum í Evrópu. Einnig er keppnisfyrirkomulag Evópukeppninnar með því móti að við fáum sjaldan eða aldrei bestu þjóðir Evrópu heim til Íslands eins og t.d. knattspyrnulandsliðin okkar. FIBA-Europe þyrfti að breyta hjá sér keppnisfyrirkomulaginu til þess að gera evrópskan körfuknattleik vinsælan og sýniegan eins og t.d. á Íslandi. Netfjölmiðlar eins og karfan.is, mbl.is og visir.is hafa reyndar verið mjög duglegir við að flyta fréttir af keppninni heim til Íslands og þar vil ég sérstaklega þakka þeim félögum á karfan.is fyrir öflugan fréttaflutning af þessari keppni sem og öðrum alþjóðlegum viðburðum körfuknattleik. Ég bind vonir við að íslenskar sjónvarpsstöðvar muni í næstu stórkeppnum í körfubolta gera okkur á Íslendingum kleyft að sjá þennan magnaða körfuknattleik sem er á boðstólum á leikjum sem þessum hér á Spáni. Þar sem við Íslendingar erum alltaf dugleg við að miða okkur við Norðurlöndin þá er t.d EM í körfubolta sýnt í Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi þrátt fyrir að þessi lönd eigi ekki fulltrúa í keppninni. En ég skynja mikinn áhuga stjórnenda íslenskra sjónvarpsstöðva fyrir því að sýna í framtíðinni frá jafn glæsilegri íþróttakeppni og fer fram hér á EM á Spáni. Fyrir utan okkur Friðrik Inga eru hér einnig í Madrid 17 manna hópur íslenskra dómara sem komu hingað til þess að fræðast um dómgæslu og er það ánægjulegt fyrir okkur að sjá þann mikla áhuga og ánægju sem íslenskir dómarar hafa á því að læra af þeim bestu hér í Madrid. M.a. komu tveir FIBA-Europe dómarar sem hafa verið að dæma hér hvern stórleikinn á fætur öðrum og miðluðu af reynslu sinni til íslenskra kollega sinna, vel gert hjá stjórn KKDÍ og þeirra félögum. Með körfuboltakveðju frá EM í Madrid, Hannes S.Jónsson Formaður KKÍ |