© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
22.2.2006 | Óskar Ó. Jónsson
Tölfræði liðanna í Iceland Express deild karla: 1. sæti Njarðvík
Það eru aðeins fimm umferðir eftir af Iceland Express deild karla og framundan er því lokaspretturinn þar sem barist verður um deildarmeistaratitilinn, um sæti og heimavallarrétt í úrslitakeppninni auk þess sem fallbaráttan verður algleymingi.

Heimasíða KKÍ fer yfir frammistöðu liðanna í Iceland Express deildinni til þessa í hinum ýmsu tölfræðiþáttum og tekur fyrir eitt og eitt lið fram að 18. umferðinni sem hefst klukkan 19.15 á fimmtudagskvöldið. Njarðvík er í 1. sæti í Iceland Express deildinni með 15 sigra og 2 töp.

Njarðvík er í efsta sæti á fimm tölfræðilistum þar af snúa fjórir þeirra af varnarleik. Njarðvík hefur fengið flest víti allra liða, fæst stig á sig, mótherjarnir nýta skotin sín verst á móti þeim ekki síst þar sem Njarðvíkur-liðið ver flest skot allra liða. Þá gefa mótherjar Njarðvíkur fæstar stoðsendingar á móti þeim. Njarðvík er í 2. sæti í 3ja stiga skotnýtingu, fæstum fengnum villum og yfir slökustu 3ja stiga skotnýtingu mótherja. Njarðvík er ekki í neðsta sæti á neinum lista en hér fyrir neðan má sjá sætaröð liðsins á öllum tölfræðilistunum.

Röð liða í Iceland Express deildinni:
1. Njarðvík 15 sigrar - 2 töp
2. Keflavík 13-4
3. KR 12-5
4. Grindavík 12-5
5. Skallagrímur 11-6
6. Snæfell 10-7
7. ÍR 9-8
8. Fjölnir 7-10
9. Hamar/Selfoss 4-13
10. Þór Akureyri 4-13
11. Haukar 3-14
12. Höttur 2-15

Leikir sem Njarðvík á eftir:
23. febrúar ÚtileikurSnæfell (6. sæti)
26. febrúar Heimaleikur Höttur (12. sæti)
2. mars Útileikur Grindavík (4. sæti)
5. mars Heimaleikur Fjölnir (8. sæti)
9. mars Útileikur Keflavík (2. sæti)

Tölfræði Njarðvíkur í Iceland Express deild karla 2005-2006:

Sóknarleikurinn:
Njarðvík 4. sæti Flest stig í leik 92,2
Njarðvík 5. sæti Fæstir tapaðir í leik 15,7
Njarðvík 4. sæti Flestar stoðsendingar í leik 18,6
Njarðvík 5. sæti Fæst varin skot mótherja 3,1
Njarðvík 9. sæti Flest sóknarfráköst í leik 9,8
Njarðvík 3. sæti Flestar fiskaðar villur í leik 21,9
Njarðvík 3. sæti Flestar 3ja stiga körfur í leik 9,9
Njarðvík 1. sæti Flest víti fengin í leik 25,6
Njarðvík 4. sæti Besta skotnýting 46,8%
Njarðvík 2. sæti Besta 3ja stiga skotnýting 38,1%
Njarðvík 8. sæti Besta vítanýting 69,0%
Njarðvík 11. sæti Hæsta hlutfall frákasta í sókn 27,5%

Varnarleikurinn:
Njarðvík 1. sæti Fæst stig á sig í leik 77,1
Njarðvík 2. sæti Fæstar villur fengnar í leik 18,9
Njarðvík 5. sæti Flestir þvingaðir tapaðir í leik 18,1
Njarðvík 1. sæti Fæstar stoðsendingar hjá móth 13,1
Njarðvík 9. sæti Fæst sóknarfráköst mótherja 11,9
Njarðvík 1. sæti Flest varin skot í leik 7,4
Njarðvík 6. sæti Flestir stolnir boltar í leik 10,8
Njarðvík 4. sæti Fæst víti gefin í leik 19,9
Njarðvík 1. sæti Slakasta skotnýting móth. 39,9%
Njarðvík 6. sæti Hæsta hlutfall frákasta 49,7%
Njarðvík 5. sæti Hæsta hlutfall frákasta í vörn 69,7%
Njarðvík 2. sæti Slakasta 3ja stiga skotnýting móth. 31,1%

Bekkurinn:
Njarðvík 5. sæti Flest stig frá bekk í leik 19,1
Njarðvík 4. sæti Flestar mínútur frá bekk í leik 57,6
Njarðvík 3. sæti Flest fráköst frá bekk í leik 8,9
Njarðvík 8. sæti Flestar stoðs frá bekk í leik 2,7
Njarðvík 6. sæti Besta skotnýting hjá bekk 40,0%
Njarðvík 4. sæti Besta vítanýting hjá bekk 70,9%
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Unglingalandslið Íslands sem tók þátt í Evrópukeppninni í Antalya í Tyrklandi árið 1976. Frá vinstri: Steinn Sveinsson, fararstjóri, Örn Þórisson, Fram, Birgir Thorlacius, Fram, Þorsteinn Bjarnason, Keflavík, Ómar Þráinsson, Fram, Þórir Einarsson, Fram, Pétur Guðmundsson, Val, Þorvaldur Geirsson, Fram, Óskar Baldursson, Breiðabliki, Erlendur Markússon, ÍR, Ríkharður Hrafnkelsson, Val, Sigurjón Ingvarsson, Fram og Gunnar Gunnarsson, þjálfari.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið