© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
22.2.2006 | Óskar Ó. Jónsson
Tölfræði liðanna í Iceland Express deild karla: 2. sæti Keflavík
Það eru aðeins fimm umferðir eftir af Iceland Express deild karla og framundan er því lokaspretturinn þar sem barist verður um deildarmeistaratitilinn, um sæti og heimavallarrétt í úrslitakeppninni auk þess sem fallbaráttan verður algleymingi.

Heimasíða KKÍ fer yfir frammistöðu liðanna í Iceland Express deildinni til þessa í hinum ýmsu tölfræðiþáttum og tekur fyrir eitt og eitt lið fram að 18. umferðinni sem hefst klukkan 19.15 á fimmtudagskvöldið. Keflavík er í 2. sæti í Iceland Express deildinni með 13 sigra og 4 töp.

Keflavík er í efsta sæti í sex tölfræðiþáttum þar af fjórum sem tengjast framlagi frá varamönnum liðsins. Keflavík er með bestu vítanýtinguna og þvingar flesta tapaða bolta hjá móherjum sínum. Varamenn Keflavíkur eru síðan í efsta sæti í mínútum, stigum, fráköstum og stoðsendingum. Keflavík er í 2. sæti í stoðsendingum, skotnýtingu, stolnum boltum sem og skot- og vítanýtingu varamanna. Keflavík er á botninum á einum lista en ekkert lið leyfir mótherjum sínum að taka fleiri sóknafráköst að meðaltali í leik. Sætaröð Keflavíkur á öllum listunum má finna hér fyrir neðan.

Röð liða í Iceland Express deildinni:
1. Njarðvík 15 sigrar - 2 töp
2. Keflavík 13-4
3. KR 12-5
4. Grindavík 12-5
5. Skallagrímur 11-6
6. Snæfell 10-7
7. ÍR 9-8
8. Fjölnir 7-10
9. Hamar/Selfoss 4-13
10. Þór Akureyri 4-13
11. Haukar 3-14
12. Höttur 2-15

Leikir sem Keflavík á eftir:
23. febrúar HeimaleikurGrindavík (4. sæti)
26. febrúar Útileikur Þór Akureyri (10. sæti)
2. mars Heimaleikur Fjölnir (8. sæti)
5. mars Útileikur Hamar/Selfoss (9. sæti)
9. mars Heimaleikur Njarðvík (1. sæti)

Tölfræði Keflavíkur í Iceland Express deild karla 2005-2006:

Sóknarleikurinn:
Keflavík 3. sæti Flest stig í leik 94,4
Keflavík 7. sæti Fæstir tapaðir í leik 17,2
Keflavík 2. sæti Flestar stoðsendingar í leik 20,9
Keflavík 10. sæti Fæst varin skot mótherja 4,3
Keflavík 5. sæti Flest sóknarfráköst í leik 11,5
Keflavík 5. sæti Flestar fiskaðar villur í leik 20,9
Keflavík 5. sæti Flestar 3ja stiga körfur í leik 8,2
Keflavík 6. sæti Flest víti fengin í leik 21,4
Keflavík 2. sæti Besta skotnýting 47,6%
Keflavík 9. sæti Besta 3ja stiga skotnýting 33,6%
Keflavík 1. sæti Besta vítanýting 76,6%
Keflavík 3. sæti Hæsta hlutfall frákasta í sókn 32,6%

Varnarleikurinn:
Keflavík 6. sæti Fæst stig á sig í leik 86,1
Keflavík 8. sæti Fæstar villur fengnar í leik 20,8
Keflavík 1. sæti Flestir þvingaðir tapaðir í leik 19,8
Keflavík 8. sæti Fæstar stoðsendingar hjá móth 17,8
Keflavík 12. sæti Fæst sóknarfráköst mótherja 13,1
Keflavík 4. sæti Flest varin skot í leik 3,7
Keflavík 2. sæti Flestir stolnir boltar í leik 12,2
Keflavík 8. sæti Fæst víti gefin í leik 21,2
Keflavík 4. sæti Slakasta skotnýting móth. 43,0%
Keflavík 7. sæti Hæsta hlutfall frákasta 49,6%
Keflavík 11. sæti Hæsta hlutfall frákasta í vörn 65,4%
Keflavík 10. sæti Slakasta 3ja stiga skotnýting móth. 37,6%

Bekkurinn:
Keflavík 1. sæti Flest stig frá bekk í leik 28,9
Keflavík 1. sæti Flestar mínútur frá bekk í leik 74,5
Keflavík 1. sæti Flest fráköst frá bekk í leik 11,4
Keflavík 1. sæti Flestar stoðs frá bekk í leik 8,1
Keflavík 2. sæti Besta skotnýting hjá bekk 44,0%
Keflavík 2. sæti Besta vítanýting hjá bekk 77,1%
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Axel Kárason tekur hér eitt af sínum fyrstu körfuboltaskotum á ævinni á heimatilbúna körfu í Sólheimum í Blönduhlíð þar sem hann bjó.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið