© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
     
22.2.2006 | Óskar Ó. Jónsson
Tölfræði liðanna í Iceland Express deild karla: 8. sæti Fjölnir
Það eru aðeins fimm umferðir eftir af Iceland Express deild karla og framundan er því lokaspretturinn þar sem barist verður um deildarmeistaratitilinn, um sæti og heimavallarrétt í úrslitakeppninni auk þess sem fallbaráttan verður algleymingi.

Heimasíða KKÍ fer yfir frammistöðu liðanna í Iceland Express deildinni til þessa í hinum ýmsu tölfræðiþáttum og tekur fyrir eitt og eitt lið fram að 18. umferðinni sem hefst klukkan 19.15 á fimmtudagskvöldið. Fjölnir er í 8. sæti í Iceland Express deildinni með 7 sigra og 10 töp.

Fjölnir er í efsta sæti á tveimur tölfræðilistum, ekkert lið hefur fiskað fleiri villur á mótherja sína í vetur og mótherjar Fjölnis hafa nýtt 3ja stiga skotin sín verst. Fjölnismenn eru í neðsta sæti á þremur listum, ná lægsta hlutfalli frákasta, samtals, í sókn og í vörn.

Röð liða í Iceland Express deildinni:
1. Njarðvík 15 sigrar - 2 töp
2. Keflavík 13-4
3. KR 12-5
4. Grindavík 12-5
5. Skallagrímur 11-6
6. Snæfell 10-7
7. ÍR 9-8
8. Fjölnir 7-10
9. Hamar/Selfoss 4-13
10. Þór Akureyri 4-13
11. Haukar 3-14
12. Höttur 2-15

Leikir sem Fjölnir á eftir:
23. febrúar ÚtileikurHöttur (12. sæti)
26. febrúar Heimaleikur Grindavík (4. sæti)
2. mars Útileikur Keflavík (2. sæti)
5. mars Útileikur Njarðvík (1. sæti)
9. mars Heimaleikur Skallagrímur (5. sæti)

Tölfræði Fjölnis í Iceland Express deild karla 2005-2006:

Sóknarleikurinn:
Fjölnir 5. sæti Flest stig í leik 90,0
Fjölnir 3. sæti Fæstir tapaðir í leik 15,2
Fjölnir 6. sæti Flestar stoðsendingar í leik 18,0
Fjölnir 5. sæti Fæst varin skot mótherja 3,1
Fjölnir 10. sæti Flest sóknarfráköst í leik 9,6
Fjölnir 1. sæti Flestar fiskaðar villur í leik 22,4
Fjölnir 5. sæti Flestar 3ja stiga körfur í leik 8,2
Fjölnir 2. sæti Flest víti fengin í leik 25,1
Fjölnir 5. sæti Besta skotnýting 45,8%
Fjölnir 6. sæti Besta 3ja stiga skotnýting 36,3%
Fjölnir 4. sæti Besta vítanýting 72,4%
Fjölnir 12. sæti Hæsta hlutfall frákasta í sókn 27,4%

Varnarleikurinn:
Fjölnir 10. sæti Fæst stig á sig í leik 91,2
Fjölnir 4. sæti Fæstar villur fengnar í leik 19,2
Fjölnir 11. sæti Flestir þvingaðir tapaðir í leik 15,4
Fjölnir 7. sæti Fæstar stoðsendingar hjá móth 17,7
Fjölnir 11. sæti Fæst sóknarfráköst mótherja 12,8
Fjölnir 2. sæti Flest varin skot í leik 4,1
Fjölnir 11. sæti Flestir stolnir boltar í leik 8,3
Fjölnir 5. sæti Fæst víti gefin í leik 20,3
Fjölnir 9. sæti Slakasta skotnýting móth. 46,7%
Fjölnir 12. sæti Hæsta hlutfall frákasta 46,6%
Fjölnir 12. sæti Hæsta hlutfall frákasta í vörn 65,1%
Fjölnir 1. sæti Slakasta 3ja stiga skotnýting móth. 30,6%

Bekkurinn:
Fjölnir 10. sæti Flest stig frá bekk í leik 12,4
Fjölnir 9. sæti Flestar mínútur frá bekk í leik 48,9
Fjölnir 10. sæti Flest fráköst frá bekk í leik 5,6
Fjölnir 6. sætiFlestar stoðs frá bekk í leik 4,0
Fjölnir 7. sæti Besta skotnýting hjá bekk 38,4%
Fjölnir 11. sæti Besta vítanýting hjá bekk 62,9%
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
8.-10. flokkur stúlkna hjá Val að undirbúa sig fyrir leik á móti í Gautaborg í Svíþjóð. Valur vann leikinn 26-24. Liðið komst í b-úrslit á mótinu en gat ekki spilað úrslitaleikinn þar sem að ferðaskrifstofa liðsins gerði ekki ráð fyrir að liðið færi svona langt. Stelpurnar þurftu því að halda heim til Íslands áður en mótið kláraðist.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið