S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
25.9.2000 | Henning Henningsson
1. deild kvenna 2000-2001: KR
Á þessari stundu er erfitt að gera sér grein fyrir styrk KR liðsins þar sem breytingar hafa einnig orðið á liðum helstu keppinauta KR undanfarin ár þ.e. Keflavík og ÍS. Þrátt fyrir ofangreindar breytingar á liðinu þá er liðið eftir sem áður borið uppi af reyndum leikmönnum sem hafa verið í eldlínunni með liði KR undanfarin ár. Þar er ég helst að tala um landsliðskonurnar Kristínu Jónsdóttur fyrirliða KR, Hönnu Kjartansdóttir varafyrirliða, Hildi Sigurðardóttur og Grétu Grétarsdóttur, auk þeirra sem getið hefur verið að ofan. Það er ljóst að miklir hæfileikar búa í liðinu og spurningin er einungis sú hvort hugarfarið verði nógu gott og metnaðurinn verði nægilega mikill til að liðið nái ásættanlegu sæti þegar uppi er staðið næsta vor. Markmið körfuknattleiksdeildar KR er að hafa alltaf á að skipa einu af bestu liðum landsins og svo er einnig í ár. Ég á von á jöfnu móti í vetur og er að mínu mati ógerningur að spá um það hvaða lið stendur uppi sem sigurvegari næsta vor. |