S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
3.3.2003 | 22:59 | ÓÓJ
Grindvíkingar deildarmeistarar í þriðja sinn
Þetta var áttundi heimasigur Grindavíkurliðsins í röð í deildinni í Röstinni en alls vann liðið 10 af 11 heimaleikjum sínum í vetur. Vinni Grindavíkurliðið alla heimaleiki sína sem þeir eiga eftir verða þeir deildarmeistarar. Með þessu er jafnframt ljóst að deildarmeistaratitilinn dvelur á Suðurnesjum þrettánda árið í röð en Njarðvík (5), Keflavík (5) og Grindavík (3) eru einu liðin sem hafa unnið þennan bikar frá árinu 1990 er KR varð deildarmeistari. Flestir deildarmeistaratitlar í úrvalsdeild 1984-2003: 11 - Njarðvík (1984-1989, 1991, 1995, 1996, 2000, 2001) 5 - Keflavík (1992, 1993, 1997, 1999, 2002) 3 - Grindavík (1994, 1998, 2003) 1- KR (1990) Helgi Jónas Guðfinnsson skoraði 31 stig á 28 mínútum fyrir Grindavík og þeir Guðlaugur Eyjólfsson og Páll Axel Vilbergsson, fyrirliði, voru með 18 stig hvor en liðið lék í leiknum án bandaríska leikmanns síns, Darrel Lewis, sem lék ekki vegna meiðsla sem hann hlaut í leik gegn Njarðvík á föstudaginn. Lewis hefur gert 27,6 stig að meðaltali í vetur auk 9,7 frákasta og 5,4 stoðsendinga. Grindvíkingar hittu úr 18 af 30 þriggja stiga skotum sínum í leiknum, þar af 13 af 17 í öðrum (8/7) og þriðja leikhluta (9/6). Þetta gerir 60% skotnýtingu fyrir utan þriggja stiga línuna. Grindavíkurliðið hitti meðal annars úr 8 þriggja stiga skotum í röð í þessum leik. Þeir Helgi Jónas Guðfinnson og Guðlaugur Eyjólfsson gerðu báðir sex þriggja stiga körfur úr aðeins sjö tilraunum og Guðlaugur hefur hitt úr 14 af 17 þriggja stiga skotum sínum í síðustu tveimur leikjum því hann hitti úr 8 af 10 skotum fyrir utan þriggja stiga línuna í 99-94 tapi í Njarðvík á föstudagskvöldið. Þetta er sjötti leikurinn í Intersportdeildinni í vetur þar sem Grindavíkurliðið hittir úr meira en 50% þriggja stiga skota sinna. Bestu skotsýningar Grindvíkinga í þriggja stiga skotum í vetur: 65,4% - 26/17 - 103-101 sigur á Breiðabliki í Smáranum 60% - 30/18 - 105-80 sigur á Haukum á heimavelli 56,5% - 23/13 - 115-107 sigur á Hamri á heimavelli 53,8% - 26/14 - 110-60 sigur á Val á Hlíðarenda 52% - 25/13 - 105-95 sigur á Haukum á Ásvöllum 50% - 22/11 - 110-85 sigur á ÍR á heimavelli |