© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
13.2.2003 | 23:33 | Óskar Ó. Jónsson
Keflavíkurkonur deildarmeistarar í sjöunda sinn - hafa 10 stiga forskot
Keflavíkurkonur urðu í kvöld deildarmeistarar í 1. deild kvenna í sjöunda sinn eftir 58-65 sigur á Grindavík í Röstinni í Grindavík. Leikið er nú um deildarmeistaratitilinn í 11. sinn en úrslitakeppnin var sett á laggirnar vorið 1993.
Keflavík varð deildarmeistari sex fyrstu árin sem leikið var um þennan titil en hann hafði síðan haldist í höfuðborginní síðustu fjögur árin eða allt til að Keflavík vann hann aftur eftir fimm ára hlé í kvöld.
Keflavík hefur eftir þennan 14. sigur sinn í deildinni í vetur tíu stiga forskot á KR, sem er í öðru sæti, þegar aðeins átta stig eru eftir í pottinum. KR-liðið hefur hinsvegar unnið fimm deildarleiki í röð og öll liðin í deildinni eftir áramót.

Deildarmeistarar í 1.deild kvenna:
2003 Keflavík
2002 ÍS
2001 KR
2000 KR
1999 KR
1998 Keflavík
1997 Keflavík
1996 Keflavík
1995 Keflavík
1994 Keflavík
1993 Keflavík

Þá komust deildarmeistararnir frá því í fyrra, ÍS, úr fallsæti í fyrsta sinn í vetur eftir 53-62 sigur á Haukum í framlengdum leik á Ásvöllum. Þetta var þriðji sigur Stúdína í framlengingu síðan 20. janúar og fjórði framlengdi leikurinn hjá ÍS á tímabilinu.

Framlengdir leikir hjá ÍS í vetur:
13.2.2003 1.deildin Haukar-ÍS 53-62 (51-51)
8.2.2003 Bikarúrslitaleikur ÍS-Keflavík 53-51 (48-48)
20.01.2003 1.deildin Grindavík-ÍS 92-95 (81-81)
16.12.2002 1.deildin ÍS-Njarðvík 77-80 (68-68)

Með því að ná 10 stigum gerðust einnig tímamót því í fyrsta sinn í sögu 1. deildar kvenna hafa öll lið deildarinnar náð að brjóta 10 stiga múrinn en það er líka löngu orðið met að alls hafa fimm leikir í deildinni farið í framlengingu í vetur.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá opnunarhátíð B-deildar Evrópukeppni U20 ára landsliða sumarið 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið