© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
29.12.2002 | 16:59 | Óskar Ó. Jónsson
Góður sigur íslensku stelpnanna í síðasta leiknum
Íslensku stelpurnar enduðu Spuerkeess-mótið í Lúxemburg á bestan mögulegan hátt með tíu stiga sigri, 65-55, á liði heimamanna. Jafnt var á flestum tölum og íslenska liðið var 35-37 undir í hálfleik en stelpurnar spiluð góða vörn og kláruðu síðan leikinn á síðustu þremur mínútunum. Íslenska liðið endaði þar með í þriðja sæti á mótin, Svíar unnu og England varð í öðru sæti. Birna Valgarðsdóttir var með 20 stig og 10 fráköst í leiknum en Erla Þorsteinsdóttir gerði 10 stig.

Íslensku stelpurnar spiluðu góða vörn allt mótið en sóknarleikurinn varð síðan betri með hverjum leik og í heildina var íslenska liðið á mikilli uppleið milli leikja. Birna Valgarðsdóttir átti mjög góðan dag í dag en eins kom Sólveig Gunnlaugsdóttir sterk upp á endakafla leiksins og Helga Jónasdóttir kom inn með mikla baráttu af bekknum.

Ísland-Lúxemburg 65-55 (16-16, 35-37, 48-49)
Stig Íslands: Birna Valgarðsdóttir 20 (10 fráköst), Erla Þorsteinsdóttir 10 (4 fráköst, 3 varin skot, 3 stolnir), Sólveig Gunnlaugsdóttir 8, Hildur Sigurðardóttir 7 (10 fráköst), Helga Þorvaldsdóttir 7 (3 stolnir), Marín Rós Karlsdóttir 5, Helga Jónasdóttir 4 (7 fráköst, 3 stolnir), Svava Ósk Stefánsdóttir 3, Kristín Blöndal 1.

Yfirlit yfir leiki íslenska liðsins á mótinu má finna hér.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Þórir Magnússon leikmaður KFR var mikil langskytta. Hér er hann um það bil að hleypa af og Kolbeinn Pálsson leikmaður KR er aðeins of seinn til varnar.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið