S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
13.11.2002 | 9:59 | bl
Ágúst hlaut sex leikja bann
Aganefnd KKÍ kvað í gær upp úrskurð í máli Ágústs Hilmars Dearborn leikmanns UMFN, sem kærður var til aganefndar í síðustu viku fyrir að sparka í liggjandi andstæðing. Nefndin sá umrætt atvik í sjónvarpi og einnig lá fyrir afsökunarbeiðni frá Ágústi þar sem hann segist harma þetta atvik mjög. Bréf Ágúst hefur verið birt í fjölmiðlum og á netinu. Úrskurður aganefndar var sá að Ágúst skuli sæta sex leikja banni.
Tveir aðrir leikmenn voru dæmdir í leikbann á fundi aganefndar í gær. Sidri Sigurðsson leikmaður KR b var dæmdur í eins leiks bann vegna brottrekstrar sem og Jakbob Ingi Ásgeirsson leikmaður Ármanns/Þróttar sem einnig var rekinn af leikvelli. Leikbönn þessi taka gildi frá og með hádegi föstudaginn 15. nóvember. |