S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
11.10.2002 | 14:13 | phs
KJÖRÍSBIKARINN af stað um helgina
Deildarmeistarar Keflavíkur mæta KFÍ sem lenti í 4. sæti 1. deildar og Njarðvíkingar mæta ÍS sem var í 3 sæti 1. deildar. KR-ingar sem lentu í 3 sæti áttu að leika við Stjörnuna en þar sem Stjarnan hefur dregið mfl. karla út úr mótinu dæmist KR-ingum sigur í viðureigninni og fara þeir áfram í 8 liða úrslit. Báðir leikir KFÍ og Keflavíkur fara fram á Ísafirði nú um helgina til að spara félögunum ferðakostnað. Leikirnir í 16 liða úrslitum Kjörísbikarsins eru eftirfarandi; 12. október KFÍ - Keflavík kl. 18.00 á Ísafirði 13. október Keflavík - KFÍ kl. 13.30 á Ísafirði, Skallagrímur - Grindavík í Borgarnesi kl. 19.15, Þór Ak. - Haukar á Akureyri kl. 16.15, ÍS - Njarðvík kl. 19.15 í Kennaraháskólanum, ÍR - Breiðablik í Seljaskólanum kl. 19.15, Snæfell - Tindastóll í Stykkishólmi kl. 19.15 og Valur - Hamar í Valsheimilinu kl. 19.15. Síðari umferðin fer fram á fimmtudag og föstudag í næstu viku. Í kvennaflokki mætast ÍR og Hamar á sunnudaginn kl. 21.15 í forkeppni að 8 liða úrslitum Kjörísbikarsins. |