© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
23.8.2014 | 8:00 | Stefán | Landslið
Hlynur í tíunda sinn yfir tíu fráköst í Evrópuleik
Hlynur eitt bros að loknum leik Bretlands og Íslands
Hlynur Bæringsson, fyrirliði íslenska körfuboltalandsliðsins var frákastahæsti maður vallarins þegar íslenska landsliðið vann 71-69 sigur á Bretum í Koparkassanum á miðvikudagskvöldið.

Hlynur tók 13 fráköst í leiknum þar af komu 7 þeirra í sókninni. Hlynur hefur alls tekið 33 í fyrstu þremur leikjum íslenska liðsins í undankeppninni í ár og er frákasthæsti leikmaður undankeppninnar með 11,0 fráköst að meðaltali í leik.

Hlynur var þarna að spila sinn tíunda Evrópuleik þar sem hann nær að taka yfir tíu fráköst en alls hefur Hlynur náð í 252 fráköst í 31 Evrópuleik. Átta af þessum tíu-frákasta leikjum hafa komið á síðustu þremur árum eða síðan að hann tók við fyrirliðabandi liðsins.

Hlynur náði sex af fráköstum sínum í fyrri hálfleiknum og sjö komu í seinni hálfleik. Hlynur náði líka þremur af sóknarfráköstunum í þriðja leikhlutanum sem íslenska liðið vann 28-16 og snéri við leiknum.

Hlynur er alltaf afar öflugur í sóknarfráköstunum en er "aðeins" sjö sóknarfráköstum frá því að taka hundrað slík í Evrópuleikjum með íslenska landsliðinu.

Frákasta-tölfræði Hlyns Bæringssonar í Evrópuleikjum:
2014 - 33 fráköst í 3 leikjum, 11,0 fráköst í leik
2013 - 33 fráköst í 4 leikjum, 8,3 í leik
2012 - 92 fráköst í 10 leikjum, 9,2 í leik
2009 - 8 fráköst í 1 leik, 8,0 í leik
2008 - 25 fráköst í 4 leikjum, 8,0 í leik
2006 - 36 fráköst í 4 leikjum, 9,0 í leik
2005 - 14 fráköst í 2 leikjum, 7,0 í leik
2004 - 10 fráköst í 2 leikjum, 5,0 í leik
2000 - 1 frákast í 1 leik, 1,0 í leik
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Lið Fylkis sem vann 2. deild karla veturinn 1997-1998.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið