© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
21.8.2014 | 17:33 | Stefán | Landslið
Logi í sigurliði í 50. sinn í gær
Logi að fagna sigrinum með félögum sínum
Logi Gunnarsson fagnaði sigri með íslenska karlalandsliðinu í körfubolta í fimmtugasta sinn í gærkvöldi þegar Ísland vann 71-69 sigur á Bretlandi í Koparkassanum í London.

Logi skoraði 9 stig á 16 mínútum í leiknum og hitti úr 3 af 6 skotum sínum. Þetta var fyrsti leikurinn í undankeppninni í ár þar sem Logi nær ekki að rjúfa tíu stiga múrinn en hann er með 12,3 stig að meðaltali í fyrstu þremur leikjunum.

Logi sem var að spila sinn 104. A-landsleik á ferlinum hefur verið í sigurliði í 48 prósent leikja sinna með landsliðinu eða í 50 leikjum af 104.

Logi hefur ennfremur verið í sigurliði í þréttán Evrópuleikjum og hefur þar eins sigurleiks forskot á Helga Má Magnússon á listanum yfir flesta sigra í Evrópukeppni innan landsliðshópsins í dag.

Flestir sigurleikir með landsliðinu í landsliðshópnum í ár:
Logi Gunnarsson 50
Helgi Már Magnússon 39
Hlynur Bæringsson 31
Jón Arnór Stefánsson 25
Sigurður Þorvaldsson 24
Pavel Ermolinskij 22
Hörður Axel Vilhjálmsson 22

Flestir sigurleikir í Evrópukeppni innan landsliðshópsins í ár
Logi Gunnarsson 13
Helgi Már Magnússon 12
Jón Arnór Stefánsson 9
Hlynur Bæringsson 9
Sigurður Gunnar Þorsteinsson 9
Pavel Ermolinskij 7
Sigurður Þorvaldsson 6
Hörður Axel Vilhjálmsson 6
Haukur Helgi Pálsson 5
Axel Kárason 5
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Alexander Ermolinski og Jonathan Bow áttu báðir farsæla ferla hér á landi. Ermolinski varð bikarmeistari með Grindavík og Bow varð margfaldur Íslandsmeistari bæði með Keflavík og KR.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið