© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
15.8.2014 | 11:38 | Stefán | Landslið
Pabbi Martins var í liðinu þegar Ísland lék síðast í Bosníu
Hermann og Friðrik eiga syni í karlalandsliðinu
Íslenska karlalandsliðið mætir Bosníumönnum í Tuzla á sunnudagskvöldið í öðrum leik sínum í undankeppni Evrópumótsins 2015 en þetta er aðeins annar A-landsleikur Íslands í Bosníu frá upphafi.

Ísland heimsótti Bosníumenn síðast í lok febrúarmánaðar 1998 en þjóðirnar mættust þá í milliriðli Evrópumótsins. Bosníumenn voru með besta liðið í riðlinum (9 sigrar í 10 leikjum) og unnu leikinn með 25 stiga mun, 109-84.

Leikurinn fór fram í Sarajevo fyrir framan 6500 manns. Bosníumenn voru með 19 stiga forskot í hálfleik, 57-38, og unnu svo seinni hálfleikinn með sex stigum, 52-46.

Teitur Örlygsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 23 stig á 27 mínútum en hann setti niður fimm þrista í leiknum. Herbert Arnarson var næststigahæstur með 15 stig á 19 mínútum.

Íslenska liðið skoraði þrettán þrista í leiknum (40 prósent nýting) sem er frábær árangur en tveggja stiga körfurnar voru aðeins samtals fjórtán og Bosnía vann fráköstin 29-12 samkvæmt tölfræði FIBA.

Það eru ein tengsl á milli þessa leiks og leiksins í Tuzla á sunnudagskvöldið. Hermann Hauksson lék með íslenska liðinu í Bosníu fyrir rúmum sextán árum en í dag spilar sonur hans Martin Hermannsson stórt hlutverk í íslenska körfuboltalandsliðinu.

Þess má reyndar geta að Herbert Arnarson er í fararstjórateymi landsliðsins í Bosníu en hann var eins og áður segir leikmaður 1998.

Hermann spilaði í 27 mínútur í leiknum en hitti aðeins úr 1 af 6 skotum og var með 4 stig, 1 frákast og 1 stoðsendingu.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Kristinn Óskarsson tekur við viðurkenningu frá Hannesi Jónssyni formanni KKÍ í tilefni af 1000. leiknum sem Kristinn dæmdi á mótum á vegum KKÍ. Kristinn er aðeins þriðji dómarinn til að ná þessum merka áfanga en kollegar hans Jón Otti Ólafsson og Rögnvaldur Hreiðarsson hafa einnig náð að kljúfa 1.000 leikja múrinn.
Leikur nr. 1.000 var viðureign Vals og Reynis frá Sandgerði í 1. deild karla 4. janúar 2008.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið