© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
10.8.2014 | 21:13 | Stefán | Landslið
Frábær sigur gegn sterku liði Breta
Haukur og Martin voru stigahæstu leikmenn Íslands í kvöld
Karlalandsliðið lagði Breta 83-70 í Laugardalshöll í kvöld í frábærum leik. Er þetta fyrsti leikur Íslands í undankeppninni fyrir EM 2015.

Fyrsta karfa kvöldsins var íslensk og eftir nokkrar mínútur var staðan orðin 20-4 fyrir Íslandi. Bretarnir náðu aðeins að rétta úr kútnum og staðan 22-10 eftir fyrsta.

Bretarnir náðu að vinna sig inn í leikinn í öðrum leikhluta og í hálfleik var jafnt 34-34.

Í þriðja leikhluta komust Bretarnir yfir á meðan íslenska liðið lenti í lægð. Í lok leikhlutans náði Ísland að komast yfir og leiddi með einu stigi 59-58.

Lokaleikhlutinn var eign Íslands frá upphafi og með frábærum leik keyrðu þeir upp muninn og Bretarnir gáfust upp. Lokastaðan 83-70.

Stigahæstur hjá Íslandi var Haukur Pálsson með 24 stig og Martin Hermannsson með 22 stig.

Tölfræði leiksins
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Lið U16 kvenna á Norðurlandamótinu í Solna í Svíþjóð 2009.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið