S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31.7.2014 | 21:05 | Kristinn | Landslið
Lúxemborg: Íslenskur sigur í fyrri vináttulandsleiknum
Íslenska karla landsliðið sigraði í fyrri vináttulandsleik sínum gegn Lúxemborg í kvöld. Lokatölur 78:64. Gangur leiksins Ísland tók 7-0 forystu í upphafi og lét hana aldrei af hendi það sem eftir lifði leik. Mestur var munurinn 18 stig. Staðan í hálfleik var 30:37 og eftir þrjá leikhluta 61:48 fyrir okkar mönnum eftir að hafa byrjað sterkt í upphafi seinni hálfleiks. Logi Gunnarsson byrjaði af krafti í sinum 100. landsleik á báðum endum vallarins og endaði stigahæstur í leiknum með 19 stig. Hlynur Bæringsson skoraði 16 stig og tók 12 fráköst. Haukur Helgi var með 12 stig og 7. Fjölmargir íslendingar mættu á leikinn en hann var auglýstur hjá félagi þeirra í Lúxemborg sem var gaman að sjá. Næsti leikur verður á laugardaginn kl. 16.00 að íslenskum tíma og flytjum við fréttir af honum á Facebook-síðu KKÍ. Tölfræði úr leiknum var skráð en ekki send út beint á netinu: |