© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.7.2014 | 11:00 | Stefán | Fyrirtækjabikar KKÍ, Mótahald
Riðlar og 1. drög að Lengjubikar karla og kvenna 2014
Craig Pedersen sá um að draga úr skálinni góðu
Búið er að draga í riðla í Lengjubikar karla og kvenna samkvæmt reglugerð um körfuknattleiksmót. Það var Craig Pedersen þjálfari karlalandsliðsins sem sá um að draga.

Stjórn KKÍ samþykkti tillögur mótanefndar á breytingu á Lengjubikarnum en þessar breytingar voru kynntar á dagatalsfundi KKÍ og félaganna fyrr í sumar.

Í Lengjubikar kvenna 2014 verða undanúrslit í stað eingöngu úrslitaleiks eins og undanfarin ár. Því fara tvö lið áfram úr hvorum riðli.

Í Lengjubikar karla 2014 verður leikin einföld umferð í riðlakeppninni. Áfram fara tvö lið áfram úr hverjum riðli.

Lengjubikar kvenna:
A-riðill
Haukar
Valur
Hamar
Breiðablik
Njarðvík

B-riðill
Snæfell
Keflavík
KR
Grindavík
Fjölnir

Leikin er einföld umferð og situr eitt lið hjá á hverjum leikdegi.

Leikdagar í Lengjubikar kvenna eru:
10. september
13. september
16. september
18. september
21. september

Stjórn KKÍ samþykkti tillögu mótanefnar sem var tilkynnt á dagatalsfundi KKÍ fyrr í sumar að nú verða undanúrslit í Lengjubikar kvenna. Sem þýðir að tvö lið fara upp úr hvorum riðli.

Leikdagar í undanúrslitum og úrslitum eru eftirfarandi: 25. september og 27. september.

Lengjubikar karla:

Í Lengjubikar karla eru 14 lið skráð. Því eru tveir riðlar með þrjú lið en dregið var uppá það hvaða riðlar voru með fjórum liðum.

A-riðill
Grindavík
Haukar
Fjölnir
Valur

B-riðill
Keflavík
Stjarnan
Skallagrímur

C-riðill
Njarðvík
Þór Þ.
Tindastóll
KFÍ

D-riðill
KR
Snæfell
ÍR

Leikin er einföld umferð í riðlinum. Í þriggja liða riðli situr eitt lið hjá á hverjum leikdegi.

Tvö lið fara upp úr hverjum riðli.

Leikdagar í Lengjubikar karla eru:
14. september
17. september
19. september

Leikdagur í 8-liða úrslitum er: 23. september
Leikdagur í 4-liða úrslitum er 26. september
Leikdagur í 2-liða úrslitum er 27. september

Með því að smella á tenglana má sjá fyrstu drög að Lengjubikar karla og kvenna.

Lengjubikar karla

Lengjubikar kvenna
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Tvö stig fyrir Ísland. Stelpurnar í U16 mættu þeim sænsku á Norðurlandamótinu í Svíþjóð 2004. Hér eru þær Helena Sverrisdóttir og María Ben Erlingsdóttir í baráttunni.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið