S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
|||
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
8.7.2014 | 14:00 | Stefán | Landslið
Átta af þrettán þekkja það vel að spila á heimavelli á Ásvöllum
Úr leiknum gegn Írlandi árið 2009
Leikurinn annað kvöld verður sá fyrsti á Íslandi í níu ár og sá fyrsti hjá stelpunum á Ásvöllum síðan þær unnu þar Írland 26. ágúst 2009. Átta af þrettán úr leikmannahópi Ívars Ásgrímssonar fyrir þessa tvo æfingaleiki við Dana hafa haft Íþróttahúsið á Ásvöllum fyrir heimavöll sinn með sínu félagsliði. Haukastelpurnar Gunnhildur Gunnarsdóttir og Margrét Rósa Hálfdanardóttir eru í hópnum en einnig þær Ragna Margrét Brynjarsdóttir, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Pálína Gunnlaugsdóttir, Kristrún Sigurjónsdóttir, Guðbjörg Sverrisdóttir og síðast en ekki síst Helena Sverrisdóttir sem allir léku með Haukum á árum áður. Það eru því aðeins þær Hildur Sigurðardóttir, Bryndís Guðmundsdóttir, María Ben Erlingsdóttir, Hildur Björg Kjartansdóttir og Marín Laufey Davíðsdóttir sem hafa ekki haft Ásvelli fyrir heimavöll á sínum félagsliðaferli. Þrjár þær fyrstnefndu hafa þó spilað þar heimaleik með íslenska landsliðinu. |