S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
8.7.2014 | 8:00 | Stefán | Landslið
Stelpurnar unnu síðasta leikinn sinn á Ásvöllum
Kvennalandsliðið 2014
Það eru liðin tæp fimm ár síðan íslensku stelpurnar spiluðu síðast landsleik á Íslandi en liðið tapaði þá fyrir Svartfjallalandi í Smárunum. Þremur dögum fyrr vann íslenska liðið hinsvegar flottan 77-68 sigur á Írlandi en það er einmitt síðasti leikur kvennalandsliðsins á Ásvöllum. Helena Sverrisdóttir, fyrirliði liðsins í dag, var að gæla við þrennuna í þeim leik en hún var þá með 14 stig, 10 stoðsendingar og 7 fráköst. Stigahæst var aftur á móti Birna Valgarðsdóttir, leikjahæsti leikmaður kvennalandsliðsins frá upphafi, en Birna skoraði 21 stig og tók 11 fráköst í þessum leik. Þetta verður áttundi leikur A-landsliðs kvenna á Ásvöllum og hefur liðið þegar fagnað þrisvar sinnum sigri í húsinu. Leikina sjö má sjá hér fyrir neðan. Leikir kvennalandsliðsins á Ásvöllum: 26. ágúst 2009: 77-68 sigur á Írlandi 19. ágúst 2009: 52-70 tap fyrir Hollandi 3. september 2008: 69-94 tap fyrir Slóveníu 27. ágúst 2008: 68-53 sigur á Sviss 1. september 2007: 52-73 tap fyrir Hollandi 30. maí 2004: 53-58 tap fyrir Englandi 25. maí 2003: 55-52 sigur á Noregi Samtals: 3 sigrar í 7 leikjum |