S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
7.7.2014 | 19:00 | Stefán | Landslið
Fyrsti leikur stelpnanna á heimavelli í tæp fimm ár
Helena í leiknum gegn Svartfjallalandi árið 2009
Leikurinn við Dani verður nefnilega fyrsti heimaleikur kvennalandsliðsins frá 29. ágúst 2009 eða frá því þegar íslenska liðið mætti sterku liði Svarfjallalands í undankeppni EM. Sá leikur fór fram í Smáranum í Kópavogi. Fimm leikmenn íslenska liðsins í dag spiluðu einnig þennan leik fyrir tæpum fimm árum en það eru fyrirliðinn Helena Sverrisdóttir, Hildur Sigurðardóttir, Kristún Sigurjónsdóttir, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir og Ragna Margrét Brynarsdóttir. Stelpurnar töpuðu leiknum á móti Svartfjallandi 62-77 og var Helena Sverrisdóttir stigahæst með 23 stig. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir fjölda landsleikja sem stelpurnar í landsliðinu í dag hafa spilað á heimavelli á sínum landsliðsferli en það er mjög gaman fyrir þær að fá á ný tækifæri til að spila fyrir íslenska áhorfendur. Landsleikir leikmanna hópsins á Íslandi: Hildur Sigurðardóttir 17 Helena Sverrisdóttir 11 María Ben Erlingsdóttir 10 Kristrún Sigurjónsdóttir 10 Bryndís Guðmundsdóttir 7 Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 6 Ragna Margrét Brynjarsdóttir 5 Pálína Gunnlaugsdóttir 5 Gunnhildur Gunnarsdóttir 0 Hildur Björg Kjartansdóttir 0 Marín Laufey Davíðsdóttir 0 Margrét Rósa Hálfdanardóttir 0 Guðbjörg Sverrisdóttir 0 |