S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
16.6.2014 | 22:50 | KGP | Yngri landslið
NM U20 - ÍSLAND-Svíþjóð 58-74
Martin Hermansson byrjað leikini vel og splundraði oft vörn Svía. Góð boltahreyfing var hjá liðinu og fengum við nokkur góð skot útur því. Leikur hélst jafn í öðrum leikhluta en um miðbik hans skiptu Svíar í svæðisvörn og hægðist á leik íslenska liðsins og svíar sigu framúr í lok fyrri hálfleiks. Í upphaf seinni hálfleiks héldu svíar uppteknum hætti og virtust ætla að stinga af þangað til Finnur Freyr tók leikhlé. Eftir leikhléið náðu Íslendingar góðu áhlaupi og minnkuðum muninn með niður í tvö stig. Svíar taka leikhlé í kjölfarið og skora strax i kjölfarið auðvelda körfu og ná áhlaupi sem kemur þeim í 10 stiga forskot. Íslenska liðið gafst ekki upp og úr varð hörku leikur þar til um 6 mínútur voru eftir þar sem Svíar halda íslenska liðinu í hæfilegri fjarlægð þar sem sóknarleikurinn komst ekki á skrið, auk þess sem liðið frákastaði einungis 10 fráköst. Strákarnir geta betur en eiga nóg inni og er stefnan sett á sigur gegn Finnum á morgun. Stigahæstu leikmenn íslenska liðsins: Maciek Bagkinski 18, Martin Hermansson 16, Matthías Sigurðsson 9. Ragnar Örn Bragason spilað sinn fyrsta landsleik í kvöld. |