© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
   
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
6.9.2002 | 10:10 | bl
Bandaríkin úr leik
Óvæntir hlutir halda áfram að gerast á HM í Indianapolis. Bandaríkin töpuðu aftur, nú fyrir Júgóslavíu 78-81 sl. nótt. Þar með er ljóst að Bandaríkin eiga ekki möguleika á að komast í undanúrslit keppninnar og munu leika um 5.-8. sætið.

Tveir tapleikir í röð hjá bandarísku landsliði er eitthvað sem menn töldu óhugsandi eftir 58 leikja sigurgöngu landsliðs skipuðu NBA-leikmönnum. Ljóst er að Bandaríkin hafa orðið fyrir miklum álitshnekki í körfuboltanum á sínum eigin heimavelli.

Fullvíst má telja að bilið milli þeirra og annarra þjóða í þessari íþrótt er horfið eða að hverfa. Ef Bandaríkin ætla sér verðlaun á stórmótum í framtíðinni geta þeirra bestu leikmenn ekki leyft sér að sitja heima. Leikmenn á borð við Shaquille O´Neal, Kobe Bryant og Michael Jordan gáfu ekki kost á sér í liðið fyrir þessa keppni.

Til að fullkomna niðurlæginguna þá hafa Bandaríkin misst sæti sitt á Ólympíuleikunum og þurfa að fara í forkeppni fyrir leikana í Aþenu 2004.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá stofnfundi Körfuboltaútgáfunnar ehf. sem gaf út tímaritið “Karfan” árið 1993.  Ólafur Johnson, Pétur Hrafn Sigurðsson, Einar Bollason, Ólafur Rafnsson, Hannes Ágúst Guðmundsson, Haukur Hauksson, Sverrir Sverrisson og Björn Leósson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið